Samstarfsaðilar




   F.C.I.    NKU
 

Dansk Kennel Klub

 

Finska Kennelklubben

 

Norsk Kennel Klub

 

Svenska Kennelklubben

 

 

 

 

Póstlisti

 
Skráning á póstlista
Netfang:


 


Forsíða > Sýningar > Sýningarþjálfun

Sýningarþjálfun


Upplýsingar um allar sýningarþjálfanir er að finna hér að neðan

Sýningarþjálfun Unglingadeildar hefst næstkomandi mánudag í Reiðhöll Fáks í
Víðidal!

Mánudagurinn 26. júlí  kl. 18:00-20:00
18:00-19:00 Ungir sýnendur
19:00-20:00 Almennir sýnendur

ATH. Ekki verður sýningarþjálfun á frídag verslunnarmanna!

Mánudagurinn 9. ágúst  kl. 18:00-20:00
18:00-19:00 Ungir sýnendur
19:00-20:00 Almennir sýnendur

Mánudagurinn 16. ágúst  kl. 18:00-22:00
18:00-19:00 Ungir sýnendur
19:00-20:00 Almennir sýnendur, tegundahópar 1,2,4,6
20:00-21:00 Almennir sýnendur, tegundahópar 3,5,9
21:00-22:00 Almennir sýnendur, tegundahópar 7,8,10

Mánudagurinn 23. ágúst  kl. 18:00-22:00
18:00-19:00 Ungir sýnendur
19:00-20:00 Almennir sýnendur, tegundahópar 1,2,4,6
20:00-21:00 Almennir sýnendur, tegundahópar 3,5,9
21:00-22:00 Almennir sýnendur, tegundahópar 7,8,10

Að venju kostar hvert skipti kr. 500.-og rennur sá peningur óskiptur til þess að styrkja keppendur Unglingadeildarinnar erlendis. En Unglingadeildin með dyggri aðstoð HRFÍ, Pedigree og Royal Canin senda fulltrúa á helstu sýningar erlendis.

Sá ungi sýnandi sem er stigahæstur eftir árið í eldri flokk keppir á Crufts. Annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Heimssýningunni og þriðji stigahæsti ungisýnandinn keppir á Evrópusýningunni. Síðan fer lið skipað fjórum stigahæstu ungu sýnendunum á Norðurlandakeppni ungra sýnenda.

Athugið að mikilvægt er að mætt sé á réttum tíma á æfingarnar svo þær geti byrjað á tilsettum tíma.

Einnig er mikilvægt að fólki taki með sér kúkapoka, sýningartaum og nammi eða dót fyrir hundinn.

Hlökkum til að sjá ykkur!


Smáhundadeild er með sýningaþjálfun  í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum, í Garðabæ sem hér segir:

Fimmtudaginn 5. ágúst kl. 19.15
Fimmtudaginn  12. ágúst kl. 19.15
Fimmtudaginn 19. ágúst kl. 19.15 *
Fimmtudaginn 26. ágúst kl. 19.15 *

Hver kennslustund er klukkutími og til að leiðsögn verði sem persónulegust og fjölbreyttust, fara þátttakendur milli leiðbeinanda, sem hver og einn leiðbeinir um ólíka þætti sem skipta máli.

Þátttökugjald er 500 krónur og getur hver sýnandi eingöngu komið með einn hund í hvert skipti.

Æskilegt er að sýnendur komi með sýningataum og dót eða nammi sem hundurinn er hrifinn af.

*Tíminn hefst á stuttu erindi (15 mínútur) um skipulag sýninga, klæðaburð, sýningatauma, einkunnir og annað sem viðkemur sýningum.

Verklegur tími verður kl. 19.30 – 20.30 og í lok tímans gefst þátttakendum þá kostur á að spyrja leiðbeinendur um hvaðeina sem viðkemur hundasýningum og undirbúningi þeirra.

Smáhundadeild er með sýningaþjálfun í Keflavík, í Hvalvík 2 (hvítt geymsluhúsnæði) sem hér segir:

Miðvikudaginn 18. ágúst kl. 20
Miðvikudaginn 25. ágúst kl. 20.


Sýningaþjálfun Svæðafélags HRFÍ á Norðurlandi verður haldin við Verkmenntaskólann á Akureyri, mæting á bílastæðið austan megin.


Sunnudagana 8., 15. og 22. ágúst klukkan 17:00
Miðvikudagana 11. og 18. ágúst klukkan 19:00


Mætum með góða skapið, sýningartauminn, skítapokana, nammið og að sjálfsögðu hundinn.

Skiptið kostar 500 kr.


Sýningarþjálfun Schäfer deildarinnar
Sýningarþjálfun fyrir Schäfer hunda verður haldin á bílaplaninu fyrir utan Reiðhöll Víðidals eftirfarandi daga:
 
Þriðjudaginn 10.ágúst klukkan 20:00
Þriðjudaginn 17.ágúst klukkan 20:00
Þriðjudaginn 24.ágúst klukkan 20:00
 
Þátttökugjald er 500 krónur og rennur óskert fyrir fjáröflun fyrir deildina.
 
Æskilegt er að sýnendur komi með sýningartaum og dót eða nammi sem hundurinn er hrifinn af.


Shih Tzu og Schnauzerdeild og munu standa fyrir sýningaþjálfun á fimmtudagskvöldum fram að ágúst sýningu HRFÍ, í reiðhöll Gusts í Álalind. 

Fimmtudaginn 12. ágúst kl. 20

Fimmtudaginn 19. ágúst kl.20

Þriðjudaginn 24. ágúst  kl.20

Ræktendur athugið!  Ef þið ætlið að vera með ræktunar- eða afkvæmahóp látið leiðbeinendur vita í upphafi tíma ef þið viljið fá þjálfun fyrir ræktunar- eða afkvæmahóp.

Þátttökugjald er 500 kr. fyrir skiptið.

→  Munið sýningataum, kúkapoka og nammi eða dót sem hundurinn er hrifinn af.

→  Þeir sem vilja geta komið með dóma frá fyrri sýningum svo hægt sé að taka mið af þeim í þjálfuninni.

→  Gott er að viðra hundinn áður en komið er með hann í sýningaþjálfun.


Sýningarþjálfanir hjá Terrierdeild fyrir ágústsýninguna eru á miðvikudagskvöldum frá kl. 20 - 21 í Reiðhöll Gusts, Álalind 3, 201 Kópavogur.
Hvert skipti kostar 500 kr.
Muna að taka góða skapið og skítapoka með. :)


Nokkrir punktar til að hafa í huga þegar sýna skal hund

Texti: Auður Sif Sigurgeirsdóttir
 
 
Fyrir sýningu:

  • Kauptu sýningartaum sem hentar hundinum.
    Gott er að taumurinn sé í sama lit og hundurinn.
    Gæta þarf þess að kaupa ekki of fíngerðan taum fyrir stóra og grófa hunda og ekki of grófan taum fyrir smáhunda.
  • Umhverfisþjálfaðu hundinn, þ.e. farðu með hann á fjölfarna staði, innan um aðra hunda o.s.frv. þannig að hundurinn sé vanur ýmsum aðstæðum.
  • Hundurinn á að vera í mátulegum holdum, vel þjálfaður og vöðvastæltur.
  • Hundurinn þarf að vera vanur því að tennur hans séu skoðaðar. Gott er að æfa þetta reglulega og biðja gesti og gangandi um að kíkja á tennur. Hrósaðu hundinum þegar hann gerir rétt.
  • Hundurinn þarf að vera vanur því að hann sé þreifaður og þurfa karlhundar að vera vanir því að athugað sé hvort þeir séu með tvö rétt staðsett eistu.
  • Þjálfaðu hundinn í að standa í sýningarstellingu (fer eftir viðkomandi tegund hvernig sýningarstellingin er). Hundurinn þarf einnig að vera kyrr meðan dómari skoðar hann.
  • Þjálfaðu hundinn í að hlaupa/brokka fallega við hlið þér/sýnandans.
  • Smáhunda þarf að þjálfa á borði. Dómarinn á að geta skoðað hundinn gaumgæfilega á borði, þ.e. þreifað á honum og skoðað tennur hans. Ef ekki er sýningarborð til staðar er gott að æfa hundinn á venjulegu borði með stamt undirlag svo hann renni ekki til og verði þar af leiðandi óöruggur. Gott er að fá gesti og gangandi til að skoða hundinn á borðinu. Athugaðu vel að hundurinn verði ekki undir neinum kringumstæðum fyrir slæmri reynslu á borðinu. Æfingar á borðinu eiga alltaf að vera skemmtilegar fyrir hundinn og sniðugt er að gefa honum bita þegar hann gerir rétt.
  • Gættu þess að tennur hundsins séu hreinar fyrir sýningu og láttu taka burt tannstein ef hann er til staðar.
  • Nauðsynlegt er að fara í sýningarþjálfanir með hundinn, bæði er það gott fyrir þig/sýnandann og hundinn. Ekki hika við að leita þér upplýsinga hjá reyndum aðilum um allt það sem brennur á þér fyrir sýninguna.
  • Gott er að fara á sýningar og fylgjast með hvernig allt fer fram.
  • Farðu með hundinn í snyrtingu tímanlega (ef þarf) og kynntu þér vel hversu mikla feldhirðu hundurinn þarf fyrir sýningu. Ræktandinn þinn ætti að geta svarað því og leiðbeint þér. Panta þarf tíma á hundasnyrtistofum með góðum fyrirvara þar sem mikið annríki er fyrir hundasýningar.
  • Klipptu klær um viku fyrir sýningu.
  • Mundu að skrá hundinn á sýninguna á réttum tíma!

Á sýningardaginn:

  • Ekki gefa hundinum að borða rétt fyrir sýningu.
    Gott er að gefa honum að borða snemma deginum áður ef hundurinn er sýndur snemma á sýningardaginn eða seint deginum áður ef hann er sýndur seint.
  • Gott er að hundurinn sé passlega svangur á sýningunni því þá er hann ekki þungur á sér á hlaupum og ef notaður er biti á hann verður hann enn sólgnari í bitann!
  • Mikilvægt er að vera snyrtilega klæddur, ekki í sama lit og hundurinn sem er sýndur. Ekki vera í háhæluðum skóm og vertu helst í fötum með vasa þar sem hægt er að geyma nammi. Sýnandinn á ávallt að vera sem bestur bakgrunnur fyrir hundinn.
  • Ekki vera með hárið flaxandi svo það trufli þig ekki.
  • Taktu til bursta, handklæði, skítapoka, sýningartaum, vatnsskál, vatn í flösku, nammibita eða dót fyrir hundinn og myntur fyrir þig (hundar finna oft lykt ef sýnandinn er stressaður og stressast oft upp).
  • Mættu tímanlega og skráðu hundinn inn.
  • Athugaðu hvernig gengur inni í sýningarhöllinni (hvort allt sé á réttum tíma o.s.frv.) Oft eru dómarar mjög fljótir að dæma eða jafnvel frekar lengi.
  • Mikilvægt er að hundurinn sé búinn að gera þarfir sínar áður en hann fer inn á sýningarsvæðið. Ef hundurinn skítur inni í sýningarhring, þá á sýnandinn að vera ávallt með poka í vasanum og hreinsa upp eftir hundinn.
  • Mikilvægt er að vera kominn tímanlega inn á svæðið því hundurinn þarf að venjast aðstæðum.
  • Hafðu hundinn ávallt í taum og vertu með fulla stjórn á honum á sýningarsvæðinu og gættu þess að hann trufli ekki aðra hunda.
  • Sýndu starfsfólki sýningar tillitssemi og farðu eftir því sem það biður um. Dómhringsverðir eru við hvern hring og gegna því mikilvæga hlutverki að allir séu komnir inn í dómhringinn á réttum tíma og í réttri röð.
  • Ef einhverjar spurningar vakna inni í sýningarhring skaltu beina spurningum til starfsmanns inni í hring.
  • Ávallt skal sýna dómara kurteisi og ekki skal ávarpa dómara að fyrra bragði.
  • Hafðu á hreinu hvað hundurinn er gamall í árum og mánuðum.
  • Taktu tillit til annarra sýnenda.
  • Passaðu að alltaf sé nóg bil á milli hundsins þíns og næsta hunds inni í hring bæði á hreyfingu og þegar þeim er stillt upp í röð. Ekki leyfa hundinum þínum að hitta næsta hund þar sem það gæti truflað báða hundana.
  • Aldrei skamma hund harkalega inni í hring.
  • Talaðu glaðlega við hundinn og hafðu þetta skemmtilega stund bæði fyrir þig og hann!
  • Þegar hlaupið eða gengið er með hundinn inni í hring skaltu gæta þess að hundurinn brokki við hlið þér. Ef hann byrjar að stökkva er gott að hægja vel niður og keyra svo aftur upp hraðann. Hundurinn er ávallt vinstra megin við þig.
  • Athugaðu að hafa hundinn fallega uppstilltan þegar dómarinn er að skoða alla hundana. Þegar dómari skoðar alla hundana í röðinni er hann að bera þá saman og þá er eins gott að hundurinn standi eins og best er á kosið!
  • Dómarinn hefur ekki langan tíma til að skoða hundinn þinn. Þess vegna skaltu gera allt sem í þínu valdi stendur til að ná því besta fram í honum. Ef hundurinn er ekki kyrr meðan dómarinn skoðar hann skaltu halda við hundinn og gera dómaranum starfið sem auðveldast. Þegar dómarinn skrifar umsögn um hundinn skaltu hafa hundinn uppstilltan um 1,5-2 m frá dómaranum. Hundinum er ávallt stillt upp á hlið, þ.e. að dómarinn sér hundinn allan í heild sinni (ekki bara frampartinn og ekki afturpartinn).
  • Dómarinn biður sýnandann oftast um að fara fram og til baka (þá er nauðsynlegt að byrja þar sem dómarinn er og fara í beina línu frá dómara og að honum aftur). Þegar hundurinn fer fram og til baka er dómarinn að skoða afturhreyfingar hundsins og framhreyfingar. Mikilvægt er að fara á réttum hraða með hundinn svo hann sýni sem bestar hreyfingar.
  • Dómarinn biður einnig oft um að hundarnir séu hreyfðir í þríhyrning en þá er dómarinn í rauninni eitt hornið á þríhyrningnum. Farið er á ská til hægri frá dómara (afturhreyfingar skoðaðar), beina línu yfir að næsta horni (hliðarhreyfingar skoðaðar) og svo ská að dómara aftur (framhreyfingar skoðaðar). Ávallt er hundurinn hafður í vinstri hönd á hreyfingu.
  • Ef hundurinn er stór skaltu nota allt það pláss sem í boði er en ef hundurinn er lítill er oft nóg að nota um ¾ af hringnum þegar farið er í þríhyrning og fram og til baka.
  • Dómarinn gefur hundinum borða, mismunandi á lit eftir árangri hundsins. Nánari upplýsingar um hvað borðarnir þýða er að finna á heimasíðu HRFÍ www.hrfi.is
  • Aldrei skal vanvirða störf dómara á nokkurn hátt.
  • Það getur alltaf komið fyrir að hundurinn sýni sig ekki eins og best er á kosið á sýningardaginn en þá er um að gera að reyna aftur og gera bara betur næst!

Greinin var birt í 2. tbl. Sáms 2006
 


 



Til baka




  Vilt þú auglýsa í SÁMI?


Blaðið er sent skuldlausum félagsmönnum HRFÍ og selt í lausasölu í verslunum og á dýralæknastofum og kostar þá 899 kr.  >> Nánar


 English version 


Flýtileið

 

Úrslit af júnísýningu Hundaræktarfélags Íslands dagana 5. - 6. júní 2010

 Myndir af sýningunni
5. - 6. júní 2010


 

   

 Allur réttur áskilinn © 1999 - 2007   
Afritun á því efni sem finnst á vefsvæði HRFÍ er óheimil nema með leyfi eigenda
 

 

Hundaræktarfélag Íslands | Síðumúla 15 | 108 Reykjavík | Sími: 588 5255 | Fax: 588 5269 | Netfang: hrfi[hjá]hrfi.is

Reikningsnúmer félagsins er: 515-26-707729 Kt. 680481-0249