|
Næstu sýningar á vegum Hundaræktarfélags Íslands SÝNINGADAGATAL HRFÍ 2013-2014
Meistarasýning - Reykjavik Winner Reykjavík 25.- 26. maí 2013 Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 26. apríl Dómarar:Paul Jentgen (Lúxemborg), Lena Stålhandske (Svíþjóð), Jörgen Hindse (Danmörk), Bo Skalin (Svíþjóð), Per Kr. Andersen (Noregi) ofl.
Alþjóðleg hundasýning Reykjavík 7.- 8. september 2013 Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 9. ágúst Dómarar: Hans Van den Berg (Holland), Agnes Ganami (Ísrael), Eeva Rautala (Finnland), Laurent Pichard (Sviss), Frank Kane (Bretland) ofl.
Alþjóðleg hundasýning Reykjavík 16.- 17. nóvember 2013 Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 18. okt Dómarar: Paula Heikkinen-Lehkonen (Finnland), Harri Lehkonen (Finnland), Seamus Otes (Írland), Gerard Jippling (Holland), Tatjana Urek (Slóvenía) ofl.
Alþjóðleg hundasýning Reykjavík 22.- 23. febrúar 2014 Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 24. janúar Dómarar: Arne Foss (Noregi), Francesco Cochetti (Ítalíu), Kurt Nilson (Svíþjóð), Benny Blid (Svíþjóð) o.fl.
Berist skráningargjald ekki fyrir síðasta dag skráningar, er skráning ógild.
Tillögur frá félagsmönnum að dómurum skulu send á fridur@hrfi.is Upplýsingar um þeirra réttindi og reynslu skulu fylgja með.
--------------------------------------------------------------------------
Parakeppni
Ekki er boðið upp á parakeppni á öllum sýningum félagsins verður framvegis auglýst sérstaklega. Í parakeppni eru par af sömu tegund sýnd þ.e. tík og rakki af sömu tegund eru sýnd saman. Einungis þeir hundar sem náð hafa 9 mánaða aldri,í eigu sama aðila og eru ræktunardæmdir á viðkomandi sýningu hafa rétt til þátttöku.
Umskráning innfluttra hunda
Til að tryggja að innfluttir hundar komist á sýningu þurfa gögn þess efnis þ.e. frumrit ættbókarskírteinis, staðfesting á eiganda hunds og staðfesting á veru hundsins í einangrunarstöð að hafa borist skrifstofu amk. 2 vikum fyrir síðasta skráningardag. Að öðru leyti er ekki tryggt að þeir komist á sýningu.
Heimilt er þó að sýna innflutta hunda án þess að umskrá þá í íslenska ættbók sé eigandi búsettur erlendis. Innflutningsleyfi og vottorð frá einangrunarstöð verða að fylgja með skráningarblaði. Þessir hundar þurfa að vera ættbókarfærðir hjá erlendu hundaræktarfélagi viðurkenndu af HRFÍ.
|