Fundurinn fer fram í húsnæði Hundaræktarfélags Íslands, Síðumúla 15.
Dagskrá:
· Kosning fundarstjóra og ritara
· Lögmæti fundar kannað
· Skýrsla stjórnar 2022
· Ársreikningur 2022
· Stjórnarkjör
· Önnur mál
Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgegni hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.