"Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni."
Ársfundur Siberian Husky deildar verður haldinn þriðjudaginn 8. mars kl. 20 á skrifstofu HRFÍ að Síðumúla 15, 108 Reykjavík. Að þessu sinni eru tveir stjórnarmeðlimir að ljúka sínu kjörtímabili og eru því tvo sæti laus.
"Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni."
0 Comments
Ársfundur Retrieverdeildarinnar verður haldinn þann 15. mars á skrifstofu HRFÍ í Síðumúla 15 kl. 20:00.
Dagskrá fundarins : 1. Farið yfir ársskýrslu stjórnar fyrir árið 2021. 2. Farið yfir rekstrarreikning 2021. 3. Umræður og hugmyndir um þarfir okkar til húsnæðis og aðstöðu til æfinga.” 4. Kosið til stjórnar Retrieverdeildar. Tvö sæti laus í stjórn til tveggja ára. 5. Val í nefndir. 6. Önnur mál. Samkvæmt reglum um ræktunardeildir er stjórn skipuð 5 stjórnarmeðlimum og eru þeir kosnir til tveggja ára, tveir og þrír í senn. Nú eru 2 sæti laus og eru það sæti Óla Þórs Árnasonar og Unnar Olgu Ingvarsdóttur. Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Á fyrsta fundi eftir ársfund skal stjórn velja sér formann. Við hvetjum ykkur kæru félagsmenn að gefa kost á ykkur til að starfa í stjórn og nefndum deildarinnar. Það er skemmtilegt að starfa í kringum áhugamálið, styrkur okkar er að sem flestir gefi kost á sér og að þátttakendur séu með mismunandi sýn og áhuga. Þá verður starfið fjölbreyttara og meiri líkur á að það falli að fjöldanum. Ávallt vantar fólk til að starfa í sýninganefnd og á árinu er á dagskrá að halda 2 deildarsýningar bæði í maí og september. Til að geta haldið þessar sýningar þarf mannskap til þess að undirbúa og setja upp sýningarnar og þess vegna væri frábært að fá sem flesta í nefndina. Það er bæði skemmtilegt og lærdómsríkt að vera í sýninganefnd og engrar sérþekkingu er krafist. F.h. stjórnar Sunna Birna Helgadóttir Ársfundur Deildar íslenska fjárhundsins verður í Sólheimakoti 27.02.2022 kl.17:00
Venjuleg aðalfundarstörf Úr stjórn ganga Helga Andrésdóttir, Bergrós Gísladóttir og Malin M. Persson, sem sækjast allar eftir endurkjöri næstu tvö árin. Eitt sæti er laust til eins árs. Verið velkomin, stjórn Díf Ársfundur Pincher, Mastiff og fjallahundadeildar (PMF deild) verður haldinn á skrifstofu HRFÍ miðvikudaginn 16.mars kl. 20:00
Dagskrá: Kosning stjórnar (fimm llaus sæti í stjórn, 3 til tveggja ára og 2 til eins árs) Önnur mál Hlökkum til að sjá sem flesta. Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgegni hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Ársfundur Siberian Husky deildar verður haldinn þriðjudaginn 15. febrúar kl. 18:00 á skrifstofu Hundaræktarfélags Íslands að Síðumúla 15 í Reykjavík. Að þessu sinni eru tveir stjórnarmeðlimir að ljúka sínu kjörtímabili og eru því tvo sæti laus.
|
DeildarfréttirÁ þessa síðu eru settar inn fréttir og tilkynningar sem berast frá deildum HRFÍ. Deildir skulu senda inn tilkynningar á netfangið hrfi@hrfi.is. Eldri fréttir
July 2023
|