Dagskrá fundarins:
1. Kosning fundarstjóra og ritara
2. Skýrslur tengiliða
3. Skýrsla stjórnar
4. Ársuppgjör frá gjaldkera
5. Kosningar tengiliða allra tegunda
6. Kosning um breytta stigagjöf innan deildarinnar *
7. Kosning stjórnarmeðlima
Kosið er um 3 sæti til 2 ára Heidi gekk úr stjórn í byrjun árs þegar hún flutti erlendis. Guðríður og Ólafur Smári gefa hvorugt kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. 8. Önnur mál * Stjórn barst formleg beiðni þess efnis að skoðað yrði nýtt fyrirkomulag fyrir stigagjöf hunda innan deildarinnar. Með erindinu barst vel útfærð tillaga að reglum um stigagjöf. Stjórn deildarinnar líst vel á þessa hugmynd og tók í framhaldi þá ákvörðun að leggja málið í hendur félagsmanna til kosningar á ársfundi. Stjórn notaðist að mestu leiti við þá hugmynd sem send var inn, en gerði á henni smávægilegar breytingar. Þetta nýja stigafyrirkomulag má kynna sér á heimasíðu deildarinnar. Sú umræða hefur margsinnis komið upp að betra væri fyrir deildina að hafa sérstakt stigakerfi, í stað þess að notast eingöngu við stig HRFÍ. Með þessum breytingum ættum við að vera laus við það að verðlauna stigalausa hunda á ársfundi félagsins, þar sem hundar safna stigum fyrir árangur innan tegundar en ekki eingöngu fyrr að ná sætaröðun í úrslitum. Við hvetjum félagsmenn til að lesa tillöguna yfir og mæta á aðalfundinn til þess að nýta kosningarétt sinn. Verði tillagan samþykt mun hún taka gildi samstundis og verða stig ársins 2020 þá reiknuð eftir þessum nýju reglum.
Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Með góðum kveðjum
Stjórn fjár-og hjarðhundadeildar