Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og ritara
- Skýrslur tengiliða
- Ársskýrsla stjórnar
- Ársuppgjör frá gjaldkera
- Kosning um reglur tengiliða tegunda
- Kosningar tengiliða allra tegunda
- Kosning stjórnarmeðlima. Þrjú sæti eru laus til tveggja ára.
- Stigahæstu vinnuhundar í öllum flokkum verða heiðraðir
- Önnur mál
Samkvæmt reglum um ræktunardeildir er stjórn skipuð fimm stjórnarmeðlimum og eru þeir kosnir til 2 ára, tveir og þrír í senn. Kjósa þarf um þrjú sæti í stjórn Fjár – og hjarðhundadeildar. Svava Björk Ásgeirsdóttir lætur af störfum eftir þriggja ára setu í stjórn og Birna Sólveig Kristjónsdóttir lætur af störfum eftir tveggja ára setu í stjórn. Einnig hefur núverandi formaður, Jónína Guðmundsdóttir, óskað eftir því að láta af störfum eftir eitt ár í starfi. Þeim er öllum kærlega þakkað sitt framlag til deildarinnar og óskað velfarnaðar í sínum verkefnum.
Stjórn óskar eftir framboðum frá félagsmönnum þeim er áhuga hafa á að starfa í stjórn deildar. Að vinna í slíkri sjálfboðavinnu er skemmtilegt, lærdómsríkt og fjölbreytt, og krefst þess að fólk geti unnið af trúmennsku í góðu samstarfi og lagt sitt af mörkum til að efla félagið og standa vörð um hagsmuni þess. Það er styrkur fyrir deildina að sem flestir gefi kost á sér og að þátttakendur séu með mismunandi sýn og reynslu. Áhugasamir frambjóðendur geta sent okkur póst á smalahundar@gmail.com. Heimasíða deildar er: www.smalar.net
Endilega hafið samband við stjórn á netfangið smalahundar@gmail.com ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Kveðja;
Stjórn Fjár- og hjarðhundadeildar