Dagskrá:
- Ársskýrsla
- Ársreikningur
- Heiðrun stigahæstu hunda ársins 2022
- Kosning tengiliða ef þurfa þykir; Bracco Italiano, Breton, Gordon Setter, Korthals Griffon, Pointer, Pudelpointer, Vizsla og Weimaraner.
- Kosning stjórnar (fjögur laus sæti í stjórn)
- Önnur mál
Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.