Dagskrá fundar
1. Kosning fundastjóra og ritara
2. Ársskýrsla deildar
3. Reikningar deildarinnar
4. Kosning stjórnar (3 sæti laus til tveggja ára og 2 sæti til eins árs)
5. Önnur mál
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgegni hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.
Stjórn Schäferdeildar