Dagskrá:
Stjórnarkjör
Tvö sæti eru laus, eitt til tveggja ára og eitt til eins árs og er óskað eftir framboðum.
Úr stjórn ganga Margrét Bára Magnúsdóttir, Arnfríður Inga Arnmundsdóttir og Sunna Líf Hafþórsdóttir. Í stjórn sitja Stefanía Sigurðardóttir og Helga Andrésdóttir, en Guðný Halla Gunnlaugsdóttir var kosin í stjórn á ársfundi og mun því sitja í þeirri stjórn sem tekur við á komandi starfsári.
Athugið !
Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.
Allir velkomnir,
stjórn deildar íslenska fjárhundsins