
Sex dómarar frá fimm löndum; Íslandi, Írlandi, Hollandi, Slóveníu og Finnland dæma í sex sýningarhringjum samtímis.
Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur, auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi.
Áhorfendum er leyfilegt að koma með sína eigin stóla og sitja við sýningahringi.
Keppni ungra sýnenda
Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu sinni taka 26 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda, föstudagskvöldið 15. nóvember kl.20:00. Dómari í þeirri keppni er Tatjana Urek frá Slóvakíu.
Hér má sjá dagskrá sýningarinnar
Hér má sjá dagskrá úrslita báða dagana