Skráningafresti hefur verið framlengt til mánudagsins 2. febrúar, kl. 15.00, gegn 750 kr. aukagjaldi.
Skráningar í afkvæma- og ræktunarhópa fara fram á sýningunni, hjá hringstjóra í viðkomandi hring. Athugið að umsögn um ræktunarhópa verður að vera undirrituð af ræktanda svo hún telji til stiga.
Dómarar að þessu sinni eru: Hassi Assenmacher-Feyel (Þýskalandi), Vincent O'Brian (Írlandi), Martin Johansson (Svíþjóð), Tomas Rohlin (Danmörk) og Janusz Opara (Póllandi).
Ekki verður birt dómaraáætlun að þessu sinni en áætlað er að vera með tegundahópa 2, 3, 4/6, 5 og 8 á laugardegi og 1, 7,9 og 10 á sunnudegi.
Hægt er að skrá á sýningarnar í gegnum síma á opnunartíma skrifstofu með kredikorti eða maestro debetkorti, vinsamlega verið með kortaupplýsingar við hendina við skráningu (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer). Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka.
Einnig er eins og áður hægt að skrá hunda á sýninguna á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 á opnunartíma skrifstofu sem er 10.00-15.00 alla virka daga.
Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.
Álag mun geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni síðustu daga skráningar og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.
Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. fyrir 16. janúar 2015.
Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.
- Á þessari sýningu geta hundar hlotið Íslenskt og alþjóðlegt meistarastig.
- Það kostar 5.720 kr. að skrá fullorðinn hund á sýninguna, 2.530 kr. fyrir hvolpa.
- Skráning í afkvæma- og ræktunarhópa fer fram á sýningunni sjálfri. Þátttaka skal tilkynnt til viðkomandi hringstjóra.
- Upplýsingar um hvaða gögn þarf til að skrá hunda í ættbók má nálgast hér.
- Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í sýningaskrá geta nálgast upplýsingar hér.
- Þeir sem vilja vera með sölu- og eða kynningarbás á sýningunni sjá hér.