Skráningafresti lýkur föstudaginn 10. október 2014. - Skráningar sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.
Dómarar að þessu sinni eru: Espen Engh (Noregi), Guenther Ehrenreich (Austurríki) , Carsten Birk (Danmörku), Ann-Christin Johansson (Svíþjóð), Charlotte Høier (Danmörku) og Marianne Baden (Danmörku)
Hér má sjá áætlun um hvaða dómari dæmir hvaða tegund og á hvaða degi tegundirnar eru áætlaðar.
Hægt er að skrá á sýningarnar í gegnum síma á opnunartíma skrifstofu með kredikorti eða maestro debetkorti, vinsamlega verið með kortaupplýsingar við hendina við skráningu (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer). Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka.
Einnig er eins og áður hægt að skrá hunda á sýninguna á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 á opnunartíma skrifstofu sem er 10.00-15.00 alla virka daga.
Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.
Álag mun geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni síðustu daga skráningar og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.
Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. fyrir 26. september 2014.
Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.
- Á þessari sýningu geta hundar hlotið Íslenskt og alþjóðlegt meistarastig.
- Það kostar 5.720 kr. að skrá fullorðinn hund á sýninguna, 2.530 kr. fyrir hvolpa.
- Skráning í afkvæma- og ræktunarhópa fer fram á sýningunni sjálfri. Þátttaka skal tilkynnt til viðkomandi hringstjóra.
- Upplýsingar um hvaða gögn þarf til að skrá hunda í ættbók má nálgast hér.
- Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í sýningaskrá geta nálgast upplýsingar hér.
- Þeir sem vilja vera með sölu- og eða kynningarbás á sýningunni sjá hér.