Sex dómarar frá fjórum löndum; Finnlandi, Lúxemborg, Ítalíu, Ísrael og Hollandi dæma í sex sýningarhringjum samtímis.
Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur, auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi. Unglingadeild verður með sjoppusölu á fyrstu hæð báða dagana og matsala verður í veitingarsal á annari hæð á sunnudeginum.
Keppni ungra sýnenda
Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu sinni taka 22 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda, föstudagskvöldið 5. september kl.19:00 í Víðidal. Dómari í þeirri keppni er Saija Juutilainen frá Finnlandi.
Hér má sjá dagskrá sýningarinnar
Hér má sjá dagskrá úrslita báða dagana