Því mun þessi ársfundur verða boðaður af stjórn HRFÍ og við hvetjum alla áhugasama eigendur að tegundum deildarinnar að mæta og láta í sér heyra og bjóða fram störf til eflingar deildarinnar. Að loknum fundi mun deildin afhent nýrri stjórn deildarinnar og stjórn HRFÍ hlakkar til að starfa með þeim. Ársfundur PMF deildar HRFI verður því haldinn miðvikudaginn 16. mars næstkomandi í húsnæði HRFÍ að Síðumúla 15, og hefst hann kl 20:00. Auglýsingu er að finna undir flipanum Deildarfréttir.
Um ársfundi ræktunardeilda HRFÍ segir :
Ræktunardeildir skulu halda ársfund á tímabilinu 1. janúar til 31. mars. Til hans skal boðað með a.m.k. 7 daga fyrirvara á vefsíðu HRFÍ og heimasíðu deildarinnar (Facebook-síðu). Hlutverk ársfundar er að velja ræktunarstjórn og taka ákvarðanir í málum, sem stjórn deildarinnar eða stjórn HRFÍ kýs að bera undir fundinn. Stjórn ræktunardeilda skal skrifa skýrslu um starfsemi deildarinnar ár hvert. Skýrslan skal gefa skýra mynd af ræktunarstarfi og öðrum störfum innan deildarinnar. Þar skal einnig koma fram áætluð starfsemi á nýju starfsári. Ræktunardeildir með eigin fjárhag skulu leggja fram rekstrar- og efnahagsyfirlit og fjárhagsáætlun eftir því sem við á, á ársfundi deildarinnar. Eftir ársfund deildarinnar skal samhljóða skýrslum skilað til stjórnar HRFÍ.
Um ræktunardeildirnar sjálfar segir :
Ræktunardeildir HRFÍ eru þrenns konar og eru þær skilgreindar á eftirfarandi hátt:
a) Ræktunardeild um eitt hundakyn sem kallast sérdeild. Sjá grein 1.
b) Ræktunardeild um tvö eða fleiri hundakyn sem tilheyra sama tegundahópi og hafa svipaða meðfædda eiginleika kallast hópdeild. Sjá grein 2.
c) Í safndeild eru þau hundakyn sem ekki tilheyra sérdeild eða hópdeild. Sjá grein 3.
Stjórn ræktunardeildar
- Stjórn ræktunardeildar skal skipuð þremur eða fimm félagsmönnum. Eigi að fækka stjórnarmönnum eða fjölga þeim, skal slíkt koma fram í fundarboði og síðan kosið um tillögu að fjölgun eða fækkun á ársfundi deildarinnar áður en kosið er til
stjórnar. Heimilt er að kjósa tvo varamenn í stjórn ræktunardeilda til tveggja ára í senn. Einungis þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og eru skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn, geta gefið kost á sér í stjórn ræktunardeildar.
- Kosning í stjórn ræktunardeildar fer fram á ársfundi deildarinnar ár hvert. Hver stjórnarmaður er kosinn til tveggja ára í senn. Endurkjör er leyfilegt. Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Á fyrsta fundi eftir ársfund skal stjórn velja sér formann.
- Við stjórnarkjör í hóp- og safndeildum skal leitast við að velja fulltrúa mismunandi hundakynja. Stjórnir hóp- og safndeilda eru hvattar til bjóða tengiliðum að sitja stjórnarfundi, að því leyti sem hægt er. Þeir sem gefa kost á sér til stjórnarstarfa í hóp- safndeildum vinna í þágu allra hundakynja sem tilheyra deildinni.
Þeir hundar sem tilheyra PMF deild HRFÍ eru allir hundar af tegundahópi 2 sem ekki tilheyra sérdeildum (Schnauzerdeild, Boxerdeild eða Sankti Bernharðs deild) .
f.h. stjórnar HRFÍ
Guðbjörg Guðmundsdóttir