Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir aðalfund fer fram á skrifstofu Hrfí, Síðumúla 15, 108 Reykjavík, dagana 9. og 10. maí og 13.-15. maí 2019, kl. 10-12 og 13-15, alla dagana.
Kosningarétt á aðalfundi og við utankjörfundaratkvæðagreiðslu hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald til félagsins fyrir árið 2019 í síðasta lagi þann 8. maí 2019. Kjörskrá við utankjörfundaratkvæðagreiðslu og kosningu á aðalfundi verður lögð fram miðað við lok dags 8. maí 2019.
Í framboði í stjórnarkjöri eru:
Formaður: Herdís Hallmarsdóttir
Aðalstjórn: Guðrún Helga Harðardóttir, Heiðar Sveinsson, Mekkín Gísladóttir og Svava Björk Ásgeirsdóttir
Varastjórn: Damian Krawzcuk, Guðni B. Guðnason, Guðrún Helga Harðardóttir, Mekkín Gísladóttir og Svava Björk Ásgeirsdóttir.
Um kosninguna fer að öðru leyti samkvæmt lögum félagsins og reglum um kjörgengi, -gögn og fyrirkomulag kosninga stjórnarmanna á aðalfundi Hrfí.
Reykjavík 2. maí 2019
Kjörstjórn á aðalfundi Hundaræktarfélags Íslands 2019
Ari Karlsson
Jónas Friðrik Jónsson
Erna Sigríður Ómarsdóttir