Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands fer fram þann 31. maí 2021, kl. 20:00, í Verslunarskóla Íslands, bláa sal.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir aðalfund fer fram á skrifstofu Hrfí, Síðumúla 15, 108 Reykjavík, dagana 25.-28. maí og og 31. maí 2021, kl. 10-12 og 13-15, alla dagana.
Kosningarétt á aðalfundi og við utankjörfundaratkvæðagreiðslu hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald til félagsins fyrir árið 2019 í síðasta lagi þann 24. maí 2021.
Kjörskrá við utankjörfundaratkvæðagreiðslu og kosningu á aðalfundi verður lögð fram miðað við lok dags 24. maí 2021.
Í framboði í stjórnarkjöri eru:
Formaður: Daníel Örn Hinriksson, Klara Símonardóttir
Aðalstjórn: Helga Kolbeinsdóttir, Maríanna Gunnarsdóttir
Varastjórn: Anna María Ingvarsdóttir
Um kosninguna fer að öðru leyti samkvæmt lögum félagsins og reglum um kjörgengi, -gögn og fyrirkomulag kosninga stjórnarmanna á aðalfundi Hrfí.
Reykjavík 18. maí 2021
Kjörstjórn á aðalfundi Hundaræktarfélags Íslands 2021
Ari Karlsson
Jónas Friðrik Jónsson
Erna Sigríður Ómarsdóttir