Með útgáfu reglugerðarinnar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lokið útfærslu á nýjum dýravelferðarlögum fyrir allar helstu dýrategundir sem löggjöfin nær yfir. Matvælastofnun fer með framkvæmd laganna og reglugerða um velferð dýra og hefur eftirlit með að ákvæðum þeirra sé fylgt.
Dagskrá
- 13:00 – 13:10 Ný reglugerð um velferð gæludýra - Halldór Runólfsson, fundarstjóri
- 13:10 – 13:20 Af hverju nýjar reglur og hver fylgist með? - Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir
- 13:20 – 14:30 Meðferð, umhirða og aðbúnaður gæludýra - Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun
- 14:30 – 14:45 Hlé
- 14:45 – 15:15 Tilkynningarskylt dýrahald – hvað er það? - Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun
- 15:15 – 15:55 Umræður
- 15:55 – 16:00 Samantekt og lokaorð - Halldór Runólfsson, fundarstjóri
Skráning
Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir! Skráning fer fram á netfanginu mast@mast.is. Vinsamlega takið fram fullt nafn, fyrirtæki/samtök og netfang þátttakanda við skráningu. Skráningarfrestur er til 1. mars nk.
Nánari upplýsingar um reglugerðina er að finna hér:
http://www.mast.is/frettaflokkar/frett/2016/02/24/Malthing-Nyjar-reglur-um-velferd-gaeludyra/