
Dómari í þeirri keppni er hinn virti atvinnusýnandi Hugo Quevedo frá Perú. Í úrslitum á sunnudag kemur svo í ljós hvaða ungu sýnendur eru stigahæstir eftir keppnir ársins og munu keppa fyrir okkar hönd á erlendri grundu.

Vinnuhundadeild verður jafnframt með Brons, Hlýðni 1 og Hlýðni 2 próf á sýningasvæðinu sem er áætlað að hefjast kl.20.00. Dómari er Albert Steingrímsson.
Helgina 14. – 15. nóvember mæta 600 hreinræktaðir hundar af 81 hundategundum í dóm á alþjóðlegri hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands. Sýningin er haldin í reiðhöllinni í Víðidal og hefjast dómar kl. 09:00 árdegis báða daga og standa fram eftir degi. Áætlað er að úrslit á báða hefjast um kl. 15:00 og þá kemur í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara. Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu.
Fimm dómarar frá fjórum löndum; Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Íslandi dæma í fjórum eða fimm sýningarhringjum samtímis.
Þar sem þetta er síðasta sýning ársins verða á henni jafnframt heiðraðir stigahæðstu hundar ársins og þjónustu- og afrekshundur ársins verða kynntir og heiðraðir.
Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur, auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi.
Ungmennadeild verður með sjoppusölu á fyrstu hæð báða dagana.