Alþjóðleg sýning með Írsku þema Helgina 3. – 4. september mæta 600 hreinræktaðir hundar af 85 hundategundum í dóm á alþjóðlegri hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands. Sýningin er haldin í reiðhöllinni í Víðidal og hefjast dómar kl. 10:00 árdegis báða daga og standa fram eftir degi. Áætlað er að úrslit á báða hefjast um kl. 15:00 og þá kemur í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara. Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu. Fimm dómarar frá Írlandi dæma í fimm sýningarhringjum samtímis Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur, auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi. Ungmennadeild verður með sjoppusölu á fyrstu hæð báða dagana. Hér má sjá dagskrá báða dagana og dagskrá í úrslitum. |
Hvolpasýning HRFI og keppni ungra sýnenda á föstudag Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu sinni taka 28 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda, föstudagskvöldið 2. september í reiðhöllinni í Víðidal og hefst dómur kl.17:00 á eldri flokk. Hilde Fredriksson frá Finnlandi mun dæma keppni ungra sýnenda en hún er með gríðarlega mikla reynslu og þekkingu á sportinu. Hilde naut mikillar velgengni á sínum ferli sem ungur sýnandi. Á sama stað verður hvolpakeppni HRFI og Royal Canin, en alls keppa 109 hvolpar á aldrinum 3.-9.mánaða af 32 mismunandi tegundum. Dómar hefjast kl.18.00. Dómarar eru John Muldoon, Sean Delmar, Collette Muldoon og Cathy Delmar frá Írlandi. Hér má sjá dagskrá hvolpasýningar. Vinnuhundanefnd verður jafnframt með Brons, Hlýðni 1 og Hlýðni 2 próf á sýningasvæðinu sem er áætlað að hefjast kl.16.00. Dómari er Þórhildur Bjartmarz. |