Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu sinni taka 23 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda, föstudagskvöldið 18. sept kl.18:00 í Víðidal. Dómari í þeirri keppni er Svava Arnórsdóttir frá Íslandi.
Á sama stað verður hvolpakeppni HRFI, en alls keppa 113 hvolpar af 33. tegundum. Dómarar eru Daníel Örn Hinriksson og Sóley Möller frá Íslandi.
Alþjóðleg sýning
Helgina 18. – 20. september mæta 546 hreinræktaðir hundar af 77 hundategundum í dóm á alþjóðlegri hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands. Sýningin er haldin í reiðhöllinni í Víðidal og hefjast dómar kl. 10:00 árdegis báða daga og standa fram eftir degi. Áætlað er að úrslit á báða hefjast um kl. 15:00 og þá kemur í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara. Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu.
Fimm dómarar frá fimm löndum; Danmörku, Svíþjóð, Rússlandi, Pólandi og Noregi dæma í fimm sýningarhringjum samtímis.
Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur, auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi.
Ungmennadeild verður með sjoppusölu á fyrstu hæð báða dagana .