Jens Knudsen frá Danmörku mun koma og augnskoða fyrir félagið.
Við viljum minna félagsmenn sem eru að koma með hundana sína í augnskoðun að ganga snyrtilega um skrifstofu félagsins og ekki leyfa hundum að merkja innandyra né við inngang.
Gott er að koma með rakkabindi fyrir þá hunda sem eru gjarnir á að merkja inni.
Einnig viljum við minna á að passa bil milli hunda meðan þeir bíða eftir sínum tíma.
Eftir augnskoðunina eru augu hundsins viðkvæm fyrir birtu svo ekki er ráðlagt að þeir séu í mikilli sól eða birtu, best er að geyma lengri göngutúra eftir augnskoðunina þangað til daginn eftir.
Við biðjum þá sem eru að mæta með hundana sína í skoðun að mæta um 10-15 mínútum fyrir tímann sinn svo hægt sé að setja augndropa í hundana fyrr til þess að allt gangi sem best og við náum að halda tíma áætlun.
Hægt er að hafa samband við skrifstofu í síma 588-5255 eða senda póst á hrfi@hrfi.is ef einhverjar aðrar spurningar vakna.