
Eitt af fyrstu verkum nýrrar stjórnar á stjórnarfundi sem haldinn verður þann 7. júní nk. verður að skipa í fastanefndir félagsins auk annarra nefnda. Allir félagsmenn geta boðið sig fram til starfa og eru eindregið hvattir til að gefa kost á sér þar sem þeir vilja hafa áhrif og vinna að framgangi mála í starfi félagsins.
Vakin er athygli á því að áhugasamir einstaklingar óskast til starfa í sýningarnefnd, vísindanefnd, laganefnd og Sólheimakotsnefnd.
Áhugsamir eru hvattir til að senda tölvupóst á netfangið stjorn@hrfi.is fyrir fimmtudaginn 7. júní.