
Það styttist heldur betur í jólahátíðina og verður að sjálfsögðu aftur jólapeysu þema á sýningunni, líkt og í fyrra, hvetjum alla til að mæta í jólalegum klæðnaði og skapa skemmtilega stemmingu.
Allir dómhringir byrja kl. 9:00 báða daga og áætlað að úrslit hefjist kl. 15:00. Gera má ráð fyrir að þau standi til u.þ.b. kl. 16:30 laugardag en u.þ.b. kl. 17:30 sunnudag. Í lok dags á sunnudaginn verður athöfn þar sem heiðraðir verða stigahæstu fjórir hundar, öldungar, ræktendur og ungir sýnendur ársins. Við hvetjum félagsmenn að staldra við eftir að úrslitum er lokið og taka þátt í að skála og fagna árangri ársins.
Á laugardag heldur HRFÍ í fyrsta sinn Norðurlandamót ungra sýnenda. Sú keppni hefst kl. 9:30 í hring 1. Þar keppa landslið allra norðurlandanna um besta sýnandann og besta liðið. Dómari verður Valerie Nunes Atkinsson frá Bandaríkjunum.
Dómarar helgarinnar verða: Ann Ingram (Írland), Arne Foss (Noregur), Birgitta Svarstad (Svíþjóð), David Connolly (Írland), Lilja Dóra Halldórsdóttir (Ísland), Marianne Holmli (Noregur) og Morag Connolly (Írland).
Dómari keppni ungra sýnenda verður Ásta María Guðbergsdóttir en keppnin fer fram á sunnudag og eru 38 ungmenni skráð til keppni. Áætlað er að keppnin hefjist um kl. 12:45, eða þegar dómum er lokið í hring 3.
Hér er hægt að sjá dagskrá og PM (dagskrá hringja)
Úrslit, umsagnir og sýningaskrá má finna á hundavefur.is
Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér ruslafötur á svæðinu.
Við minnum félagsmenn á þau ákvæði í reglugerð nr. 80/2016 er varðar velferð gæludýra þegar valdir eru sýningartaumar og ólar. Félagið hvetur félagsmenn til að nýta sér búnað sem er í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar.
Nokkrir punktar sem fara skal yfir fyrir helgina:
- Vinsamlegast keyrum hægt í hesthúsahverfinu - mikið var um of hraðan akstur á svæðinu á öðrum sýningum félagsins
- STANGLEGA BANNAÐ er að vera með hunda á reiðstígum ásamt því að leggja á reiðstígum eða við hesthúsin í hverfinu, þetta á einnig við um reiðstíginn sem liggur með fram langhlið hallarinnar að norðan verðu, næg bílastæði eru við höllina og nóg pláss til að viðra hundana, ásamt pissusvæði innan dyra við inngang.
- Hundar eru ekki velkomnir upp í stúku eða í veislusal þar sem veitingasala er.
- Hundur á sýningasvæði skal vera í stuttum taumi og tryggt að hundur sé ávallt undir stjórn ábyrgðaraðila hans. Hundar mega ekki vera í útdraganlegum taumi (eins og t.d. flexi taumi).
- Þeir sýnendur sem eru með SNYRTIBORÐ með sér þurfa að vera með undirbreiðslu undir borðið. Til dæmis má nota teppi, handklæði eða plastundirbreiðslu.
- Hirða þarf upp eftir hundinn INNI OG ÚTI og þrífa með þess tilgerðum áhöldum. Pokar, sótthreinsisprey og pappír er sem fyrr að finna m.a. á borðum við hringi. Við hvetjum fólk til þess að tryggja það að ræsta hundana ÁÐUR en komið er inn í höll og benda öðrum þátttakendum á að hirða upp eftir sína hunda fari það fram hjá þeim.
- Haldið svæðinu í kringum ykkur hreinu. Með samstilltu átaki getum við sýnt og sannað að við getum verið til fyrirmyndar þegar kemur að umgengni en vitað er að það er ein helsta gagnrýni á hundahald. Okkur langar ekkert að vera úti í kulda og frosti á haust og vetrarsýningu.
- Veitingasala verður á staðnum í veislusalnum frá kl. 9-16 ásamt því að miðasalan og rósettusalan verða á sínum stað. Aðgangur kostar 1.000 kr.
- Við minnum félagsmenn á þau ákvæði í reglugerð nr. 80/2016 er varðar velferð gæludýra þegar valdir eru sýningartaumar og ólar. Félagið hvetur félagsmenn til að nýta sér búnað sem er í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar.
Sýningastjórar eru Ágústa Pétursdóttir, Anna Guðjónsdóttir og Silja Ösp Jóhannsdóttir.
Við hlökkum til að sjá ykkur og halda þessa síðustu sýningu ársins hátíðlega
Sjá má hringja uppsetningu laugardags og sunnudags hér að neðan, ekki verður uppsetningin eins laugardag og sunnudag.