Í ár heldur Ísland Norðurlandamót ungra sýnenda í fyrsta sinn. En þar keppir landslið Íslands í ungum sýnendum við landslið hinna norðurlandanna í bæði einstaklings og liðakeppni. Keppnin fer fram á laugardegi og er dómari Valerie Nunes-Atkinson.
Á þessari sýningu verða ekki sýndir hvolpar (4-6 mánaða og 6-9 mánaða) heldur verður í staðinn haldinn hvolpasýningin þann 4. nóvember, sjá nánar hér.
Skráning er hafin á Hundavef og lýkur fyrri skráningarfresti þann 16. október kl. 15:00 og lokast alfarið fyrir skráningu þann 30. október kl. 15:00, eða fyrr ef fyllist á sýninguna.
Gjaldskrá 1: mánudagurinn 16. október, kl. 15:00
Gjaldskrá 2: mánudagurinn 30. október, kl. 15:00
Ef fólki vantar tæknilega aðstoð er það hvatt til að skrá tímanlega, ekki er veitt tæknileg aðstoð eftir kl. 16 á föstudögum. Ekki er veitt aðstoð við skráningu eftir að skráningafresti á sýninguna lýkur.
Athugið að hámarksfjöldi skráninga er 1050 skráningar og lokar skráningakerfi sjálfkrafa þegar, og ef, þeim fjölda er náð. Það gæti því gerst fyrir tilgreindan lokatíma skráningarfrests.
Umsóknir um meistaratitla, ættbókarskráningar, eigendaskipti, umskráningar á erlendum ættbókum, þurfa að hafa borist félaginu ásamt öllum viðeigandi gögnum og greiðslu Í SÍÐASTA LAGI MÁNUDAGINN 16. OKTÓBER til þess að tryggja að skráning náist.
Skráningar á sýningar HRFÍ fara fram í gegnum hundavefur.is en einnig er hægt að skrá á skrifstofu HRFÍ á sérstökum skráningarblöðum gegn aukagjaldi til og með 16. október. Skrifstofa HRFÍ er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-15. Ekki er tekið við skráningum sem berast eftir síðasta skráningardag.
Til þess að geta skráð þarf eigandi/eigendur hunds sem skráður er á sýningu HRFÍ að vera virkur félagsmaður, með greitt árgjald, í HRFÍ, eða félagi viðurkenndu af HRFÍ, það ár sem sýningin fer fram. Ef eigandi hefur ekki greitt félagsgjald skal hafa samband við skrifstofu HRFÍ til að ganga frá greiðslu á því áður en skráð er á sýningu. Hundar skráðir á sýninguna með íslenska eigendur skulu vera skráðir í HRFÍ. Aðrir hundar verða að vera skráðir hjá öðrum hundaræktunarfélögum samþykktum af FCI. Skráning og greiðsla þarf að hafa borist félaginu áður en síðasta skráningardegi lýkur.
Ekki er hægt að millifæra fyrir sýningagjöldum í vefskráningum og skráningar eru ekki teknar gildar ef greiðsla fylgir ekki.
Dómaraáætlun fyrir sýningar félagsins má nú nálgast HÉR