Föstudagskvöldið 24. nóvember verður hvolpasýning og keppni ungra sýnenda.
Laugardaginn 25. nóvember og sunnudaginn 26. nóvember verður alþjóðleg sýning
Dómarar helgarinnar eru: Frank Kane (Bretland), Gerard Jipping (Holland), Marija Kavcic (Slóvenía), Marie Thorpe (Írland) og Nils Molin (Svíþjóð).
Opið er fyrir skráningu á sýninguna og eru skráningafrestir eftirfarandi:
Gjaldskrá 1: 13. október
Gjaldskrá 2: 27. október
Umsóknir um meistaratitla, ættbókarskráningar, eigendaskipti, umskráningar á erlendum ættbókum, þurfa að hafa borist félaginu ásamt öllum viðeigandi gögnum í síðasta lagi 13. október til þess að tryggja að skráning náist.
Skráningar á sýningar HRFÍ fara aðeins fram á skrifstofu HRFÍ eða í gegnum síma. Skrifstofa HRFÍ er opin virka daga frá kl. 10-15.
Álag er á símanum síðustu skráningardaga og því eru félagsmenn hvattir til þess að vera tímanlega í skráningu. Ekki er tekið við skráningum sem berast eftir síðasta skráningadag.
Til þess að geta skráð þarf að gefa upp nafn hundsins í ættbók eða kennitölu skráðs eiganda og greiðsla þarf að fylgja skráningu. Aðeins er tekið við skráningum á hundum virkra félagsmanna (þ.e. þeirra sem hafa greitt árgjald félagsins), hægt er að ganga frá greiðslu árgjalds á sama tíma og skráð er á sýningu en ekki er hægt að greiða síðar.
Hægt er að greiða með reiðufé og öllum helstu kortum á skrifstofu. Hægt er að greiða með öllum helstu kreditkortum í gegnum síma ásamt MasterCard debetkortum frá Íslandsbanka (útgefnum eftir 2011). Nauðsynlegt er að hafa kortanúmer, gildistíma og öryggisnúmer eigi að greiða í gegnum síma.
Ekki er í boði að millifæra fyrir sýningagjöldum og skráningar eru ekki teknar gildar ef greiðsla fylgir ekki.
Dómaraáætlun
Eftirtaldir dómarar dæma tilgreindar hundategundir. Aðrir dómarar sýningar sem hafa tilskilin réttindi eru varadómarar, forfallist dómari sem skráður er á tegund eða fjöldi skráðra hunda gerir það nauðsynlegt.
Laugardagur 25. nóvember: Tegundahópar 3, 5, 7, 9 & 10
Tegundahópur 3:
Allar tegundir: Marija Kavcic
Tegundahópur 5:
Íslenskur fjárhundur: Nils Molin
Samoyed: Marija Kavcic
Siberian husky: Gerard Jipping
Tegundahópur 7:
Breton: Frank Kane
Enskur pointer: Frank Kane
Enskur setter: Frank Kane
Gordon setter: Frank Kane
Italian pointing dog: Nils Molin
Írskur setter: Frank Kane
Pudelpointer: Nils Molin
Ungversk vizsla, snöggh.: Frank Kane
Vorsteh, snöggh: Frank Kane
Vorsteh, strýh: Frank Kane
Weimaraner, snöggh: Frank Kane
Tegundahópur 9:
Bichon frise: Marie Thorpe
Cavalier king Charles spaniel: Frank Kane
Chihuahua, síðh.: Marie Thorpe
Chihuahua, snöggh.: Marie Thorpe
Tíbet spaniel: Nils Molin
Tegundahópur 10
Allar tegundir: Gerard Jipping
Sunnudagur 26. nóvember – Tegundahópar 1, 2, 4/6 og 8
Tegundahópur 1
Australian shepherd: Gerard Jipping
Border collie: Gerard Jipping
Collie rough: Marija Kavcic
Collie smooth: Marija Kavcic
Schäfer, snöggh.: Nils Molin
Schäfer, síðh.: Nils Molin
Shetland sheepdog: Marija Kavcic
Tegundahópur 2
Dvergschnauzer, allir litir: Marie Thorpe
Schnauzer, báðir litir: Marie Thorpe
Risaschnauzer, svartur: Marie Thorpe
Tegundahópur 8
Labrador retriever: Frank Kane
Golden retriever: Frank Kan