Markmið félagsins
Markmið - Verksvið - Tilgangur
Hundaræktarfélag Íslands var stofnað 4. september 1969.
Hundaræktarfélag Íslands er félag allra hundeigenda á Íslandi.
Hundaræktarfélag Íslands rekur skrifstofu sem er opin alla virka daga.
Skrifstofan er þjónustuaðili fyrir félagsmenn og hundeigendur á Íslandi.
Hundaræktarfélag Íslands ættbókarfærir hreinræktaða hunda í ættbók samkvæmt þeim reglum sem stjórn félagsins setur og og þeim kröfum sem FCI gerir til aðildarfélaga sinna um ættbókarskráningar hunda.
Hundaræktarfélag Íslands stendur vörð um hreinræktun Íslenska fjárhundsins.
Hundaræktarfélag Íslands rekur hundaskóla. Þar er boðið upp á:
Hvolpa-, grunn- og hlýðninámskeið. Einnig er boðið upp á námskeið í hundafimi o.fl.
Hundaræktarfélag Íslands gefur út eina tímaritið um hunda á Íslandi, tímaritið heitir Sámur og kemur út þrisvar sinnum á ári.
Hundaræktarfélag Íslands heldur árlega nokkrar hundasýningar þar sem allt að mörg hundruð hundar taka þátt. Þá eru veiðipróf og skapgerðarmat fyrir hunda haldin mörgum sinnum á ári. Að auki stendur svo félagið fyrir m.a. sporleitar-, hlýðni og hundafimikeppnum.
Hundaræktarfélag Íslands býður upp á fræðslu fyrir verðandi hundeigendur.
Einnig býður félagið upp á ýmiss konar fræðslufundi og námskeið fyrir félagsmenn sína.
Hundaræktarfélag Íslands heldur úti öflugu barna- og unglingastarfi.
Hundaræktarfélag Íslands hefur það að markmiði sínu að stuðla að réttri meðferð, aðbúnaði og uppeldi hunda. Einnig að stuðla að góðum samskiptum milli hundeigenda, yfirvalda og almennings.
Hundaræktarfélag Íslands fylgist með nýjungum og rannsóknum á sviðum erfðafræði, atferli og heilbrigði hunda auk þess að fylgjast með tíðni meðfæddra og/eða arfgengra sjúkdóma í hundum á Íslandi.
Hundaræktarfélag Íslands er málsvari hundeigenda gagnvart hinu opinbera.
Hundaræktarfélag Íslands hefur í áraraðir barist fyrir leyfðu hundahaldi og lækkun hundaleyfisgjalda. Meðal annars barðist félagið fyrir þeim afslætti sem nú er gefinn (50%) hafi viðkomandi sótt viðurkennt námskeið með hundinn sinn.
Hundaræktarfélag Íslands heiðrar þá hunda sem hafa með einhverjum hætti komið að björgun manna og/eða dýra, liðsinnt fötluðum eða veikum einstaklingum eða verið til uppörvunar og hjálpar á einn eða annan hátt, sem afreks- og þjónustuhunda ársins.
Hundaræktarfélag Íslands er í samstarfi við sambærileg erlend félög og er eina aðildarfélagið á Íslandi í NKU, samtökum norrænna hundaræktarfélaga og FCI, alþjóðlegum samtökum hundaræktarfélaga.