Hundarækt
Að gefnu tilefni eru ræktendur hvattir til að kynna sér lög og reglur félagsins í heild. Þó sérstaklega kaflann sem nefndur er Reglugerð um skráningu í ættbók HRFÍ.
Þar kemur fram hvað kröfur er gerðar til viðkomandi hundakynja fyrir pörun.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja gotskráningu:
I. Útfyllt pörunarvottorð undirritað af ræktanda og eiganda undaneldishunds.
II. Hvolpalisti, undirritaður af ræktanda.
III. Örmerkjablað, undirritað af dýralækni.
IV. Eistnavottorð fyrir rakka undirritað af dýralækni við fyrsta got sé hundurinn ósýndur.
V. Greiðsla skal fylga umsókn um gotskráningu.
-----------------------------------------------------------------------------
Til frekari upplýsinga:
I. Áríðandi er að fylla út alla reiti á pörunarvottorði.
Sum hundakyn þurfa að uppfylla skilyrði, s.s. augnskoðun og mjaðmamyndir.*
II. Ræktandi getur skráð hvolpa á sitt nafn uns hvolpurinn er að fullu greiddur. Eigendaskipti frá ræktanda til nýs eiganda eru án endurgjalds. Skráður eigandi hvolps verður að vera fullra 18 ára. Ekki er hægt að breyta nafni hunds í ættbók.
III. Skylt er að örmerkja alla hvolpa og undaneldisdýr. Áríðandi er að nafn hvolps/hunds komi fram á blaðinu eins og það er/verður í ættbók.
IV. Óheimilt er að ættbókarfæra afkvæmi hunds séu eistu hans ekki eðlileg og rétt staðsett (launeistu). Hafi hundur hvorki verið sýndur í ræktunardóm né eigi áður skráð afkvæmi, skal fylgja umsókn um ættbókarfærslu afkvæma hans vottorð dýralæknis um að eistu undaneldishundsins séu eðlileg og rétt staðsett. Eingöngu vottorð sem gefið er út eftir sex mánaða aldur hunds er tekið gilt.
V. Greiðsla fyrir gotskráningu hækkar eftir þriggja mánaða aldur hvolpa. Til að unnt sé að skila inn umsókn um gotskráningu fyrir þann tíma þurfa öll skilyrði að vera uppfyllt. Þ.e. niðurstöður mjaðmamynda eiga að liggja fyrir, augnvottorð sé í gildi, foreldrar og hvolpar örmerktir, ræktunarnafn sé samþykkt og greiðsla fylgi með. Berist gögnin aftur til félagsins eftir að hvolparnir hafa náð þriggja mánaða aldri hækkar skráningargjaldið.
*Sjá reglugerð um skráningu í ættbók HRFÍ.
Ath. niðurstöður mjaðmamynda og augnskoðunar skulu liggja fyrir áður en pörun fer fram. Ekki er hægt að skila inn umsókn um ættbókarskráningu fyrr en þessi gögn eru til staðar. Mismunandi er hvaða kröfur eru gerðar til undaneldisdýra en upplýsingar um mismunandi kröfur eru að finna í reglugerð um skráningu í ættbók (Sjá reglur HRFÍ).
Eyðublöð til ættbókarskráningar er hægt að nálgast hér
Ræktunarnöfn
Ferill umsóknar um ræktunarnafn
Umsóknareyðublaðið fyllist út og sendist skrifstofu HRFÍ ásamt greiðslu fyrir ræktunarnafnið. Ræktandi getur að hámarki sótt um þrjú ræktunarnöfn í einu.
Óski ræktandi þess að ræktunarnafnið verði skráð afturvirkt, verður umsækjandi að vera sá sami og er umsækjandi ræktunarnafns.
Skrifstofa HRFÍ gengur úr skugga um að umsótt nöfn stangist ekki á við reglur um ræktunarnöfn, að nöfnin séu ekki þegar skráð öðrum, séu greinilega aðskilin skráðum nöfnum og að ekki liggi fyrir umsókn um sömu nöfn.
Að fengnu samþykki HRFÍ eru nöfnin send FCI til samþykktar.
Ef einu eða fleiri nöfnum er hafnað af HRFÍ, verður umsækjanda gefinn kostur á að finna önnur nöfn.
Þegar samþykki FCI berst HRFÍ (afgreiðslutími getur verið 8-16 vikur), verður ræktunarnafnið skráð á umsækjanda bæði hjá HRFÍ og FCI.
Ræktanda er þá heimilt að skrá ræktunarnafnið afturvirkt á sín fyrri got.
Verði ræktunarnafni hafnað af FCI, verður umsækjandi að gera ráð fyrir lengri afgreiðslutíma og jafnframt því að hann þurfi að senda inn önnur nöfn.
Þegar endanleg viðurkenning liggur fyrir, verður umsækjanda sent viðurkenningarskjal sem staðfestir rétt hans til að auðkenna ræktun sína með viðkomandi ræktunarnafni.
Óheimilt er með öllu að nota ræktunarnöfn eða önnur auðkenni ræktunar áður en viðurkenning HRFÍ og FCI liggur fyrir.
HRFÍ skráir ekki ræktunarnafnið inn á áður útgefin ættbókarskírteini.
Eiganda hunds er þó heimilt að sækja um endurútgáfu ættbókarskírteinis með skráðu ræktunarnafni, gegn gjaldi og afhendingu áður útgefins ættbókarskírteinis.
Upplýsingar um öll ræktunarnöfn sem samþykkt hafa verið af FCI er að finna hér.