Ársfundur DESÍ verður haldinn föstud 21 feb. kl.19, í húsakynnum HRFÍ. Síðumúla 15. Verkefni ársfundar: Almenn aðalfundarstörf. Farið yfir árskýrslu. Kosið um 3 laus sæti til tveggja ára. Heiðrun stigahæðstu hunda deildarinnar. Önnur mál. Ef það eru einhver mál sem félagsmenn vilja ræða á ársfundinum sendið erindið á desistjorn@gmail.com . Ekki skilda en gefur möguleika á meiri umræðu. Hvetjum félagsmenn til að mæta og taka þátt í starfi deildarinnar. Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild, eru skráðir í deildina og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Takið daginn frá og sjáumst hress. Stjórn DESÍ.
0 Comments
Aðalfundur schnauzerdeildar verður haldinn 4. febrúar kl: 20 á skrifstofu Hrfí Síðumúla 15
Dagskrá: Skýrsla stjórnar skýrsla gjaldkera kosning – kosið er um tvö sæti tillaga lögð fyrir fundinn hvort fjölga eigi í stjórn og bæta við 2 varamönnum önnur mál Ræktunarstjórn er skipuð 5 félagsmönnum, sem kosnir eru til 2ja ára í senn. Kosningarétt og kjörgengi hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi, sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Á.rsfundur vinnuhundadeildarinnar verður haldinn sunnudaginn 8. mars kl 17.00 á skrifstofu HRFÍ að Síðumúla 15, annari hæð.
Dagskrá fundarinns: Farið yfir ársskýrslu deildarinnar 2019. Kosið til stjórnar Vinnuhundadeildarinnar, Tvö sæti eru laus til tveggja ára. Heiðrun stigahæstuhunda deildarinnar. Önnur mál. Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild, eru skráðir í deildina og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Ársfundur Cavalierdeildar HRFÍ verður haldinn miðvikudaginn 15. janúar, kl.19:30 á skrifstofu HRFÍ í Síðumúla 15, annarri hæð.
Dagskrá fundar: 1. Skýrsla stjórnar fyrir árið 2019 og reikningar lagðir fram 2. Kosning til stjórnar (kosið er um 2 sæti) Hrönn Thorarensen og Valka Jónsdóttir hafa lokið 2ja ára setu í stjórn. Þær gefa báðar kost á sér áfram í stjórn. Ræktunarstjórn er skipuð 5 félagsmönnum, sem kosnir eru til 2ja ára í senn. Nú er kosið um 2 sæti. Kosningarétt og kjörgengi hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi, sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. 3. Skipað í nefndir (göngu- og kynningarnefnd) 4. Önnur mál Áður en fundur hefst þá mun deildin heiðra elstu cavalierana, stigahæstu hunda ársins og göngunefnd mun heiðra göngugarp ársins. Kaffiveitingar í boði deildarinnar Að loknu kaffihléi mun Theódóra Róbertsdóttir, dýrahjúkrunarfræðingur, flytja erindi um almenna heilsu hunda og langlífi. Við hvetjum ræktendur og alla áhugasama um starfsemi deildarinnar að mæta og eiga góða kvöldstund saman. Stjórnin |
DeildarfréttirÁ þessa síðu eru settar inn fréttir og tilkynningar sem berast frá deildum HRFÍ. Deildir skulu senda inn tilkynningar á netfangið hrfi@hrfi.is. Eldri fréttir
April 2023
|