Ársfundur DESÍ verður haldinn þriðjudaginn 26. mars kl. 18:30 í Sólheimakoti.
1 Comment
Þriðjudaginn 26. mars kl. 19:30 mun ársfundur Siberian Husky deildar vera haldinn á skrifstofu HRFÍ á annari hæð í Síðumúla 15, 108 Reykjavík.
Byrjað verður á því að kjósa fundastjóra og lesa upp árskýrslu deildarinnar. Eftir það verður kosið í stjórn en tveir stjórnarmeðlimir eru nú að ljúka sínu kjörtímabili, Erla Vilhelmína Vignisdóttir og Guðrún Rut Gunnlaugsdóttir. Hvorug gefur kost á sér til endurkjörs. “Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.” (frá starfsreglum HRFÍ um ræktunardeildir) Ef deildarmeðlimir hafa einhver önnur mál sem þeir vilja að rædd séu á aðalfundinum endilega sendið okkur póst á huskydeild@gmail.com. Aðalfundur íþróttadeildar og vinnuhundadeildar HRFÍ verða haldnir saman fimmtudaginn 28. febrúar kl. 19.00 á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15.
Stigahæstu hundar ársins verða heiðraðir og ársskýrslur kynntar. Tvö sæti til stjórnar eru laus í íþróttadeild og viljum við hvetja áhugasama til að bjóða sig fram. Kveðja, stjórn íþrótta- og vinnuhundadeildar. Ársfundur Deildar íslenska fjárhundsins verður haldinn þann 27. febrúar nk., kl.20:00 á skrifstofu HRFÍ að Síðumúla 15, 108 Reykjavík
Venjuleg aðalfundarstörf. Úr stjórn ganga Stefanía Sigurðardóttir og Hrefna Sigfúsdóttir sem báðar sækjast eftir endurkjöri. Önnur mál. Stigahæstu hundar og ræktendur sýningaársins 2018 heiðraðir. Vonumst til að sjá ykkur sem flest, fh.stjórnar Stefanía Sig. Ársfundur Spaniel deildar verður haldin 18.febrúar kl 20:00 á skrifstofu Hundaræktarfélags Íslands.
Farið verður yfir ársskýrslu 2018,heiðrun stigahæstu hunda deildar og kosning í stjórn. Hlökkum til að sjá ykkur! Athugið ný dagsetning og dagskrá.
Aðalfundur Papillon Og Phalénedeildar verður haldinn á skrifstofu Hundaræktarfélagsins Íslands að Síðumúla 15, klukkan 14:00 laugardaginn 16.febrúar n.k. Dagskrá: Skýrsla stjórnar. Framtíð deildarinnar. 3 eða 5 í stjórn. Kosning stjórnar / sameining við Smáhundadeild. Önnur mál. Heiðrun stigahæstu hunda. Léttar veitingar í boði. Kveðja, stjórn Papillon- og Phalénedeildar. |
DeildarfréttirÁ þessa síðu eru settar inn fréttir og tilkynningar sem berast frá deildum HRFÍ. Deildir skulu senda inn tilkynningar á netfangið hrfi@hrfi.is. Eldri fréttir
April 2023
|