Aðalfundurinn: Ársfundur Vorstehdeildar verður haldinn í skrifstofu Hrfí 31.mars 2022 kl 19.30 Verkefnið eru hefðbundin ársfundarstörf. Farið yfir ársskýrslu stjórnar fyrir 2021 Heiðrun stigahæstu hunda 2021 Kosið til stjórnar Vorstehdeildar. Að þessu sinni eru 4 sæti laus , 2 til tveggja ára og 2 í 1 ár. Önnur mál. Samkvæmt reglum um ræktunardeildir er stjórn skipuð 5 stjórnarmeðlimum. Að þessu sinni eru það sæti Gunnar Páll Jónsson og Óskar H Halldórsson sem eru laus til tveggja ár. Sæti Sigurðar Arnet og Eiðs Gísla er laust til eins árs Við hvetjum áhugasama að bjóða sig til starfa í stjórn.
0 Comments
Terrierdeildar HRFÍ munum halda ársfund og heiðrun Terrierdeildar 30. mars kl 17:30 -20 í Síðumúla 15.
Dagskrá: 1. Ársfundur 2. Heiðrun stigahæstu hunda tegundar. 3. Heiðrun stigahæsta ræktenda 4. Heiðrun stigahæsta öldunga, ungliða og hund terrier deildar. Dagskrá ársfundar: 1. Kosning fundarstjóra og ritara 2. Árskýrsla deildar 3. Reikningar deildar - gjaldkeri fer yfir 4. Kosning stjórnar - laus eru tvö sæti í stjórn. 5. Kosning varamanna - laust fyrir einn til eins árs 6. Kosið um tengiliði tegundar 7. Önnur mál Ársfundur Írsk setter deildar verður haldinn þriðjudaginn 29. mars, kl. 20:00 að Tröllateig 29, Mosfellsbæ.
Dagskrá: Ársskýrsla stjórnar Stjórnarkjör – tvö sæti laus til 2ja ára Önnur mál Kosningarétt hafa þeir félagar deildarinnar sem eru skuldlausir við HRFÍ og eiga Írskan setter. Hjón hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi. Ársfundur Boxer deildar HRFÍ verður haldinn miðvikudaginn 23. mars 2022 að Lágaleiti 15, íbúð 106, klukkan 19.00.
Dagskrá - Venjuleg aðalfundarstörf · Ársskýrsla stjórnar · Kosning stjórnar · Önnur mál Hlutverk ársfundar er að velja ræktunarstjórn og taka ákvarðanir í málum, sem stjórn deildarinnar eða stjórn HRFÍ kýs að bera undir fundinn. Stjórn ræktunardeilda skal skrifa skýrslu um starfsemi deildarinnar ár hvert. Skýrslan skal gefa skýra mynd af ræktunarstarfi og öðrum störfum innan deildarinnar. Þar skal einnig koma fram áætluð starfsemi á nýju starfsári. Kosning í stjórn ræktunardeildar fer fram á ársfundi deildarinnar ár hvert. Hver stjórnarmaður er kosinn til tveggja ára í senn. Endurkjör er leyfilegt. Á fyrsta fundi eftir ársfund skal stjórn velja sér formann. Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgegni hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Hlökkum til að sjá ykkur, F.h. deildarinnar Inga Björk Gunnarsdóttir sperdill@live.com Ársfundur DESÍ verður haldinn á skrifstofu HRFÍ Föstudaginn 1. Apríl kl.18.
Venjuleg aðalfundastörf samkvæmt reglum HRFÍ. Heiðrun stigahæðstu hunda. Þrjú sæti eru laus til tveggja ára. Hlökkum til að sjá sem flesta. Með bestu kveðju. Stjórn DESÍ. Ársfundur Cavalierdeildar HRFÍ verður fimmtudaginn 17. mars 2022 kl. 20:00 í húsnæði Hundaræktarfélags Íslands að Síðumúla 15 2. hæð. Að þessu sinni eru tvö sæti laus í stjórn.
"Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni”. Dagskrá
Stjórn Cavalierdeildarinnar Aðalfundur schnauzerdeildar verður haldinn 21. mars kl: 20 á Eirhöfða 14. Gengið inn bakatil.
Dagskrá: Skýrsla stjórnar skýrsla gjaldkera kosning: kosið er um tvö sæti í aðalstjórn og tvo til vara önnur mál |
DeildarfréttirÁ þessa síðu eru settar inn fréttir og tilkynningar sem berast frá deildum HRFÍ. Deildir skulu senda inn tilkynningar á netfangið hrfi@hrfi.is. Eldri fréttir
April 2023
|