Ársfundur Smáhundadeildar verður haldinn fimmtudaginn 21. mars kl. 20:00 í húsnæði HRFÍ að Síðumúla 15 (2. Hæð)
Dagskrá :
Lögmæti fundar kannað, skipaður fundarstjóri og ritari fundarins
Kosning til stjórnar :
3 sæti til tveggja ára
2 sæti til eins árs
Kosning tengiliða (skv starfsreglum ræktunardeilda grein II,liður 3)
Önnur mál
III. Stjórn ræktunardeildar
1. Stjórn ræktunardeildar skal skipuð þremur eða fimm félagsmönnum. Eigi að fækka stjórnarmönnum eða fjölga þeim, skal slíkt koma fram í fundarboði og síðan kosið um tillögu að fjölgun eða fækkun á ársfundi deildarinnar áður en kosið er til stjórnar. Heimilt er að kjósa tvo varamenn í stjórn ræktunardeilda til tveggja ára í senn. Einungis þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og eru skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn, geta gefið kost á sér í stjórn ræktunardeildar.
2. Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Á fyrsta fundi eftir ársfund skal stjórn velja sér formann.
3. Við stjórnarkjör í hóp- og safndeildum skal leitast við að velja fulltrúa mismunandi hundakynja. Stjórnir hóp- og safndeilda eru hvattar til bjóða tengiliðum að sitja stjórnarfundi, að því leyti sem hægt er. Þeir sem gefa kost á sér til stjórnarstarfa í hóp- safndeildum vinna í þágu allra hundakynja sem tilheyra deildinni.
Vonumst til að sjá sem flesta
f.h. stjórnar HRFÍ
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
Guðbjörg Guðmundsdóttir