Dagskrá:
1. Skipan fundarstjóra, fundarritara og lögmæti fundarins kannað
2. Skýrsla stjórnar HRFÍ
3. Ársreikningar félagsins ásamt skýrslum löggilts endurskoðanda og félagskjörinna skoðunarmanna fyrir síðastliðið ár, lagðir fram til staðfestingar
4. Skýrsla um starfsemi siðanefndar
5. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar samþykkt fyrir næsta starfstímabil
6. Lagabreytingar
Engar tillögur að lagabreytingum liggja fyrir
7. Kosning stjórnarmanna skv. 10.gr.
Úr stjórn ganga:
Delia Howser meðstjórnandi og gjaldkeri
Ólafur E. Jóhannsson meðstjórnandi
Guðmundur A. Guðmundsson varamaður
Í framboði í stjórnarkjöri:
Sóley Halla Möller meðstjórnandi
Guðmundur A. Guðmundsson meðstjórnandi
Ragnhildur Gísladóttir varamaður
8. Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna og tveggja til vara
9. Kosning siðanefndar
10. Önnur mál
Það skal áréttað, samkvæmt lögum HRFÍ, að kosningarétt og kjörgengi hafa þeir sem greitt hafa félagsgjald sitt fyrir það ár sem aðalfundur er haldinn á, fimm virkum dögum fyrir aðalfund. Greiðsluseðlar vegna félagsgjalds 2014 voru sendir til félagsmanna í janúar.
Stjórn Hundaræktarfélags Íslands