Skráningafresti lýkur föstudaginn 24. janúar 2014. - Skráningar sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.
Dómarar að þessu sinni eru: Arne Foss (Noregur), Francesco Cochetti (Ítalía), Kurt Nilsson (Svíþjóð), Benny Blid (Svíþjóð), Kenneth Edh (Svíþjóð) og Branislav Rajić (Slóveníu)
Hægt er að skrá á sýninguna í gegnum síma á opnunartíma skrifstofu með kredikorti eða maestro debetkorti, vinsamlega verið með kortaupplýsingar við hendina við skráningu (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer). Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka.
Einnig er eins og áður hægt að skrá hunda á sýninguna á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 á opnunartíma skrifstofu sem er 10.00-15.00 alla virka daga.
Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.
Álag mun geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni síðustu daga skráningar og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.
Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. fyrir 10. janúar 2013.
Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.
- Á þessari sýningu geta hundar fengið íslenskt og alþjóðlegt meistarastig.
- Skráning í afkvæma- og ræktunarhópa fer fram á sýningunni sjálfri. Þátttaka skal tilkynnt til viðkomandi hringstjóra.
- Upplýsingar um hvaða gögn þarf til að skrá hunda í ættbók má nálgast hér.
- Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í sýningaskrá geta nálgast upplýsingar hér.
- Þeir sem vilja vera með sölu- og eða kynningarbás á sýningunni sjá hér.
Upplýsingar um sýningarþjálfun fyrir allar tegundir verður að finna hér.