Nú styttist í fyrstu útisýninguna á þessu ári. Undanfarin ár hefur þetta verið tvöföld sýning, en verður einföld að þessu sinni. Hún fer fram 11.-12. júní á Víðistaðatúni í Hafnarfirði.
Athugið að skráning fer fram í gegnum Hundavef og þurfa félagsmenn að stofna aðgang samkvæmt leiðbeiningum hér.
Sýningin er alþjóðleg en einnig verður keppt um Reykjavík Winner titillinn. Áætlað er að laugardaginn 11. júní munu hundar úr tegundahópum 3, 4, 5, 6, 7 og 9 verða sýndir, einnig verður keppni ungra sýnenda á laugardeginum. Sunnudaginn 12. júní munu hundar úr tegundahópum 1, 2, 8 og 10 verða sýndir. Ekki verður boðið uppá afkvæmahópa á sýningunni.
Dómarar helgarinnar verða: Adam Ostrowski (Pólland), Astrid Lundava (Eistland), Bertil Lundgren (Svíþjóð), Hedi Kumm (Eistland), Leif Herman Wilberg (Noregur), Michael Leonard (Írland) og Mikael Nilsson (Svíþjóð).
Búið er að opna fyrir skráningu á sýninguna og eru skráningafrestir eftirfarandi:
Gjaldskrá 1: sunnudagurinn 1. maí, kl. 23:59
Gjaldskrá 2: sunnudagurinn 15. maí, kl. 23:59
Ef fólki vantar tæknilega aðstoð er það hvatt til að skrá tímanlega, ekki er veitt aðstoð við skráningu eftir að skráningafresti á sýninguna lýkur.
Umsóknir um meistaratitla, ættbókarskráningar, eigendaskipti, umskráningar á erlendum ættbókum, þurfa að hafa borist félaginu ásamt öllum viðeigandi gögnum og greiðslu Í SÍÐASTA LAGI MIÐVIKUDAGINN 4. maí til þess að tryggja að skráning náist.
Hámarksfjöldi skráninga á sýninguna er 1150 skráningar og mun skráningakerfi loka sjálfkrafa þegar, og ef hámark næst.
Skráningar á sýningar HRFÍ fara fram í gegnum vefsíðuna Hundavefur en einnig er hægt að skrá á skrifstofu HRFÍ á sérstökum skráningarblöðum gegn aukagjaldi til og með 1.maí. Skrifstofa HRFÍ er opin þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 10-15. Ekki er tekið við skráningum sem berast eftir síðasta skráningadag. Leiðbeiningar um skráningu má sjá hér.
Til þess að geta skráð þarf eigandi/eigendur hunds sem skráður er á sýningu HRFÍ að vera virkur félagsmaður, með greitt árgjald, í HRFÍ, eða félagi viðurkenndu af HRFÍ, það ár sem sýningin fer fram. Ef eigandi hefur ekki greitt félagsgjald getur viðkomandi greitt það inná Hundavefur.is eða haft samband við skrifstofu HRFÍ til að ganga frá greiðslu áður en skráð er á sýningu. Hundar skráðir á sýninguna með íslenska eigendur skulu vera skráðir í HRFÍ. Aðrir hundar verða að vera skráðir hjá öðrum hundaræktunarfélögum samþykktum af FCI. Skráning og greiðsla þarf að hafa borist félaginu áður en síðasta skráningadegi lýkur.
Ekki er hægt að millifæra fyrir sýningagjöldum í vefskráningum og skráningar eru ekki teknar gildar ef greiðsla fylgir ekki.
Dómaraáætlun
Eftirtaldir dómarar dæma tilgreindar hundategundir. Aðrir dómarar sýningar sem hafa tilskilin réttindi eru varadómarar, forfallist dómari sem skráður er á tegund eða fjöldi skráðra hunda gerir það nauðsynlegt.
Laugardagur 11. júní: Tegundahópar 3, 4, 5, 6, 7 og 9
Tegundahópur 3:
Australian silky terrier: Adam Ostrowski (PL)
Bedlington terrier: Mikael Nilsson (SE)
Border terrier: Mikael Nilsson (SE)
Bull terrier: Mikael Nilsson (SE)
Dandie dinmont terrier: Mikael Nilsson (SE)
German hunting terrier: Adam Ostrowski (PL)
Irish soft coated wheaten terrier: Mikael Nilsson (SE)
Jack russel terrier: Adam Ostrowski (PL)
Skye terrier: Mikael Nilsson (SE)
West highland white terrier: Mikael Nilsson (SE)
Yorkshire terrier: Mikael Nilsson (SE)
Tegundahópur 4:
Dachshund: Bertil Lundgren (SE)
Tegundahópur 5:
Chow chow: Leif Herman Wilberg (NO)
Finnish lapphund: Leif Herman Wilberg (NO)
German spitz, miniature: Astrid Lundava (EIS)
Íslenskur fjárhundur: Leif Herman Wilberg (NO)
Japanese spitz: Leif Herman Wilberg (NO)
Pomeranian: Astrid Lundava (EIS)
Samoyed: Astrid Lundava (EIS)
Siberian husky: Hedi Kumm (EIS)
Tegundahópur 6:
Basset hound: Bertil Lundgren (SE)
Beagle: Bertil Lundgren (SE)
Dalmatian: Astrid Lundava (EIS)
Petit basset griffon vendeen: Bertil Lundgren (SE)
Rhodesian ridgeback: Bertil Lundgren (SE)
Tegundahópur 7:
Allar tegundir: Bertil Lundgren (SE)
Tegundahópur 9:
Bichon frise: Adam Ostrowski (PL)
Boston terrier: Michael Leonard (IR)
Cavalier king charles spaniel: Michael Leonard (IR)
Chihuahua: Adam Ostrowski (PL)
Chinese crested: Adam Ostrowski (PL)
Coton de tuléar: Leif Herman Wilberg (NO)
French bulldog: Hedi Kumm (EIS)
Griffon bruxellois: Michael Leonard (IR)
Havanese: Michael Leonard (IR)
Lhasa apso: Hedi Kumm (EIS)
Maltese: Leif Herman Wilberg (NO)
Papillon: Adam Ostrowski (PL)
Pekingese: Leif Herman Wilberg (NO)
Poodle: Mikael Nilsson (SE)
Pug: Astrid Lundava (EIS)
Russian toy: Astrid Lundava (EIS)
Shih tzu: Bertil Lundgren (SE)
Tibetan spaniel: Hedi Kumm (EIS)
Tibetan terrier: Michael Leonard (IR)
Sunnudagur 12. júní: Tegundahópar 1, 2, 8 og 10
Tegundahópur 1:
Australian cattle dog: Leif Herman Wilberg (NO)
Australian shepherd: Leif Herman Wilberg (NO)
Bearded collie: Leif Herman Wilberg (NO)
Beauceron: Leif Herman Wilberg (NO)
Border collie: Leif Herman Wilberg (NO)
Briard: Astrid Lundava (EIS)
Collie, rough: Leif Herman Wilberg (NO)
Collie, smooth: Leif Herman Wilberg (NO)
German shepherd dog: Astrid Lundava (EIS)
Shetland sheepdog: Mikael Nilsson (SE)
Welsh corgi pembroke: Leif Herman Wilberg (NO)
White swiss shepherd dog: Leif Herman Wilberg (NO)
Tegundahópur 2:
Bernese mountain dog: Michael Leonard (IR)
Boxer: Hedi Kumm (EIS)
Bulldog: Michael Leonard (IR)
Bullmastiff: Michael Leonard (IR)
German pinscher: Adam Ostrowski (PL)
Giant schnauzer, black: Adam Ostrowski (PL)
Great dane: Hedi Kumm (EIS)
Miniature pinscher: Hedi Kumm (EIS)
Miniature schnauzer, black&silver: Adam Ostrowski (PL)
Miniature schnauzer, black: Hedi Kumm (EIS)
Miniature schnauzer, pepper&salt: Mikael Nilsson (SE)
Miniature schnauzer, white: Adam Ostrowski (PL)
Rottweiler: Hedi Kumm (EIS)
Schnauzer, black: Adam Ostrowski (PL)
Schnauzer, pepper&salt: Adam Ostrowski (PL)
St. Bernhards: Michael Leonard (IR)
Tegundahópur 8:
American cocker spaniel: Mikael Nilsson (SE)
English cocker spaniel: Michael Leonard (IR)
English springer spaniel: Bertil Lundgren (SE)
Flat-coated retriever: Bertil Lundgren (SE)
Golden retriever: Michael Leonard (IR)
Labrador retriever: Bertil Lundgren (SE)
Nova scotia duck tolling retriever: Bertil Lundgren (SE)
Tegundahópur 10:
Allar tegundir: Mikael Nilsson (SE)