Fimm dómarar frá fimm löndum; Þýskalandi, Írlandi, Póllandi, Svíþjóð og Noregi dæma í fimm sýningarhringjum samtímis.
Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur, auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi.
Keppni ungra sýnenda
Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu sinni taka 22 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda, föstudagskvöldið 27. febrúar kl.18:00 á sama stað. Dómari í þeirri keppni er Martin Johansson frá Svíþjóð.