Sex dómarar frá fjórum löndum; Austurríki, Danmörku, Svíþjóð og Noregi dæma í sex sýningarhringjum samtímis.
Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur, auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi. Unglingadeild verður með sjoppusölu á fyrstu hæð báða dagana .
Keppni ungra sýnenda
Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu sinni taka 23 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda, föstudagskvöldið 7. nóvember kl.20:00 í Víðidal. Dómari í þeirri keppni er Espen Engh frá Noregi.
Hér má sjá dagskrá sýningarinnar