Hundaræktarfélag Íslands
  • Heim
  • Fréttir
  • Deildarfréttir
  • Félagið
    • Lög og reglur
    • Stjórn HRFÍ
    • Viðburðardagatal
    • Siðanefnd
    • Nefndir
    • Prófd., hringstj., leiðb. o.fl.
    • Námskeið
    • Aðalfundir
    • Fulltrúaráð
    • Titlar
    • Afreks- og þjónustuhundar
  • Skrifstofa
    • Gjaldskrá
    • Opnunartími
    • Starfsmenn HRFÍ
    • Ýmis tölfræði
    • Eyðublöð
    • Vörur til sölu
    • Sámur
    • Litli Sámur
    • Minning
    • Bóka skrifstofu HRFÍ og Sólheimakot
  • Sýningar
    • Sýningadagatal
    • Umsagnir og niðurstöður af sýningum
    • Dómaraviðtöl - SýningarSámur
    • Sýningaskipurit
    • Stigahæstu ræktendur
    • Stigahæstu hundar
    • Stigahæstu öldungar
    • Sýningaþjálfun
    • Borðar á sýningum
    • Myndasafn
  • Heilsufar
    • Dagatal augnskoðunar
    • Ferill augnskoðunar
    • Mjaðma-olnbogamyndun
    • Foreldragreining DNA
    • Arfgengir sjúkdómar
    • Lifrarbólga
    • Parvó smáveirusótt
  • Hundarnir
    • Innskráning erlendra ættbóka
    • Ræktun
    • Voff.is
    • Langar þig í hund >
      • Að fá sér hund
      • Kaupsamningur
      • Ættbók HRFÍ
      • Innflutningur hunda
      • Nýi hvolpurinn
    • Hundategundir
    • Hundasvæði
    • Hundaskóli HRFÍ
    • Heimasíða fyrir hundaeigendur
    • Ill meðferð á dýrum
    • Samþykktir um hundahald
  • Deildir
  • English

Umsóknir fyrir bása opnar

23/6/2023

 
Nú er hægt að sækja um básapláss á ágúst sýningunni 12. - 13. ágúst.

Fylla þarf út umsóknina ( sem er hér að neðan) og senda á silja@hrfi.is - umsóknafrestur er til 21. júlí - umsóknir sem berast eftir það verða ekki samþykktar. 

hlökkum til að sjá sem flesta :)
umsókn_sölubás_á_útisýningu_2023.pdf
File Size: 27 kb
File Type: pdf
Download File

Picture

Norðurlandasýning 12.-13. ágúst!

19/6/2023

 
Picture
Nú fer heldur að styttast í seinni útsýningu ársins sem er NKU Norðurlandasýning og fer fram dagana 12.-13. ágúst og verður haldin í hjarta Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni.
Athugið að boðið verður upp á keppni ungra sýnenda bæði á laugardag og sunnudag.

Dómarar helgarinnar verða: Åke Cronander (Svíþjóð), Dagmar Klein (Rúmenía), Hans Van den Berg (Holland), Jari Partanen (Noregur), Paula Rekiranta (Finnland), Rui Oliveira (Portúgal), Svend Løvenkjær (Danmörk) og Thomas Rohlin (Danmörk).
​Fyrri skráningafrestur, gjaldskrá 1: 2. júlí kl. 23:59
Seinni skráningafrestur, gjaldskrá 2: 16. júlí kl. 23:59

Skráning gengur mjög vel og minnum á að fyrri skráningafrestur lýkur þann 2. júlí kl 23:59  og lokast alfarið fyrir skráningu þann 16. júlí kl 23.59
Gjaldskrá 1: sunnudagurinn 2. júlí, kl. 23:59
Gjaldskrá 2: sunnudagurinn 16. júlí, kl. 23:59 

​
Ef fólki vantar tæknilega aðstoð er það hvatt til að skrá tímanlega, og munum við reyna að aðstoða í gegnum email í sumarlokun.
Ekki er veitt aðstoð við skráningu eftir að skráningafresti á sýninguna lýkur. Athugið að hámarksfjöldi skráninga er 1300 hundar og lokar skráningakerfi sjálfkrafa þegar og ef þeim fjölda er náð. Það gæti því gerst fyrir tilgreindan lokatíma skráningafrests.
Umsóknir um meistaratitla, ættbókarskráningar, eigendaskipti, umskráningar á erlendum ættbókum, þurfa að hafa borist félaginu ásamt öllum viðeigandi gögnum og greiðslu Í SÍÐASTA LAGI MÁNUDAGINN 3. JÚLÍ til þess að tryggja að skráning náist.

Skráningar á sýningar HRFÍ fara fram í gegnum hundavefur.is en einnig er hægt að skrá á skrifstofu HRFÍ á sérstökum skráningarblöðum gegn aukagjaldi til og með 2. júlí. Skrifstofa HRFÍ er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-15. Ekki er tekið við skráningum sem berast eftir síðasta skráningadag.

Til þess að geta skráð þarf eigandi/eigendur hunds sem skráður er á sýningu HRFÍ að vera virkur félagsmaður, með greitt árgjald, í HRFÍ, eða félagi viðurkenndu af HRFÍ, það ár sem sýningin fer fram. Ef eigandi hefur ekki greitt félagsgjald skal hafa samband við skrifstofu HRFÍ til að ganga frá greiðslu á því áður en skráð er á sýningu. Hundar skráðir á sýninguna með íslenska eigendur skulu vera skráðir í HRFÍ. Aðrir hundar verða að vera skráðir hjá öðrum hundaræktunarfélögum samþykktum af FCI. Skráning og greiðsla þarf að hafa borist félaginu áður en síðasta skráningadegi lýkur.

Ekki er hægt að millifæra fyrir sýningagjöldum í vefskráningum og skráningar eru ekki teknar gildar ef greiðsla fylgir ekki.
Dómaraáætlun fyrir sýningar félagsins má nú nálgast HÉR

Augnskoðun 22. júní - 24. júní

16/6/2023

 
Skoðað verður í Dýraspítalanum Lögmannshlíð á Akureyri og í Sólheimakoti fyrir Reykjavíkursvæðið.

Hér má finna tímana, hundar eru skráðir eftir ættbókarnafni og ættbókarnúmeri. Hægt er að leit með því að gera ctrl f og skrifa nafnið eða ættbókarnúmerið. 

Ef hundur var skráður en finnst ekki á listanum er sá hundur ógreiddur.  

Pössum umgegni á skoðunarstöðum. Virðum tímasetningar! mætið á réttum tíma!
Akureyri 22. júní
File Size: 197 kb
File Type: pdf
Download File

Reykjavík 22. júní
File Size: 178 kb
File Type: pdf
Download File

Reykjavík 23. júní
File Size: 211 kb
File Type: pdf
Download File

Reykjavík 24. júní
File Size: 212 kb
File Type: pdf
Download File

​Rit- og fræðslunefnd Sáms leitar að áhugasömum félagsmönnum til að ganga til liðs við nefndina

13/6/2023

 
Sámur er gefinn út á netinu www.hundasamur.is og er helsta fræðslu og fréttaveita félagsmanna.
 
Dæmi um verkefni nefndarinnar:
      - viðtöl við t.d. ræktendur, dómara, dýralækna, þjálfara og hundafólk.
      - greinaskrif um t.d. þjálfun, íþróttir, veiði, sögu, heilsu og hundasýningar.
      - fréttir um það sem er að gerast hjá félaginu og úti í hinum stóra hundaheimi.
      - skipulagning á fræðsluviðburðum félagins.
 
Hæfniskröfur:
      - jákvæðni og áhugi á hundum og hundatengdum málefnum.
 
Athugið að ekki er nauðsynlegt að vera með framúrskarandi íslensku og stafsetningarkunnáttu til að vera í nefndinni. Reynsla af greinaskrifum er ekki skilyrði og allir áhugasamir eru velkomnir.
Áhugasamir hafi samband á netfangið hundasamur@hrfi.is – Linda Björk Jónsdóttir, ritstjóri Sáms. 

ÁRÍÐANDI TILKYNNING FRÁ SÝNINGASTJÓRN

9/6/2023

 
Við vorum að fá þær fréttir að Rafael Malo Alcrudo hefur þurft að tilkynna forföll nú um helgina. Þar sem við höfum ekki svigrúm í tíma til að fá staðgengil hefur verið ákveðið að endurraða dagskrám á þá 12 dómara sem eftir eru. Þetta þýðir að tilkynnt dagskrá og PM mun riðlast eitthvað við biðjum sýnendur um að fylgjast vel með hér á síðunni þar sem að við birtum uppfærðar dagskrár eins fljótt og auðið er. Vonumst við eftir skilningi félagsmanna á þessum aðstæðum. Vinsamlegast deilið sem víðast.
Við gerum þetta saman! Góðu fréttirnar eru að það er sól um helgina
- Með sól í hjarta, sýningastjórn HRFÍ

Tvöföld sýning um helgina, 10.-11. júní!

7/6/2023

 
Picture
Nú um helgina, 10.-11. júní, verður fyrri útisýningar helgi sumarsins haldin á Víðistaðatúni í Hafnarfirði, í þetta skipti eru þetta tvær sýningar. Skráning á sýningarnar fór fram út björtustu vonum, en bætt var við dómara í lok skráningar til að koma fleiri að. Á laugardag eru 1040 hundar skráðir ásamt 32 ungum sýnendum og 1030 hundar skráðir á sunnudag ásamt 24 ungum sýnendum. Allir dómhringir byrja kl. 9:00 báða daga og áætlað að úrslit hefjist kl. 15:30 báða daga. Gera má ráð fyrir að þau standi til u.þ.b. kl. 18.

Dómarar helgarinnar verða: Anita Duggan (Írland), Barbara Müller (Sviss), Charlotta Melin (Svíþjóð), Daníel Örn Hinriksson (Ísland), Dimitris Antonopoulos (Svíþjóð), Herdís Hallmarsdóttir (Ísland), Jørgen Hindse (Danmörk), Laurent Pichard (Sviss), Ozan Belkis (Tyrkland), Sóley Halla Möller (Ísland), Terje Lindstrøm (Noregur) og Þórdís Björg Björgvinsdóttir (Ísland).
​
Hér er hægt að sjá dagskrá og PM (dagskrá hringja)
Vekjum athygli á nýjum dagskrálið sem verður haldinn báða daga í úrslita hringnum milli kl 10 og 12, en það er innkallsþraut og eru allir hundar velkomnir! Sjá nánar hér.
Úrslit, umsanig og sýningaskrá má finna á hundavefur.is

Uppsetning sýningar fer fram á föstudeginum 9. júní. Ekki verður heimilt að tjalda á túninu fyrr en uppsetningu er lokið og leyfi hefur verið veitt, það er áætlað kl. 18 en gæti orðið seinna. Vinsamlegast athugið að tjöld við sýningarhringi mega ekki vera stærri en 3m x 3m og þau verða að vera staðsett minnst 4 metrum frá sýningahringjum. Stærri tjöldum má tjalda fjarri sýningarhringjum.

Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér ruslafötur á svæðinu. 
Vinsamlega athugið að ​lausaganga hunda á svæðinu er stranglega bönnuð og skulu allir hundar vera í taumi og á eru þeir alfarið á ábyrgð eigenda sinna. 
​Við minnum félagsmenn á þau ákvæði í reglugerð nr. 80/2016 er varðar velferð gæludýra þegar valdir eru sýningartaumar og ólar. Félagið hvetur félagsmenn til að nýta sér búnað sem er í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar.

Vinsamlegast skoðið myndina hér að neðan hvar má tjalda, en fyrirkomulagið er breytt frá því sem áður var.
Skipulag svæðisins og hringja má sjá hér að neðan. Bendum á að myndin er ekki í réttum hlutföllum, en hún sýnir grófa yfirsýn á svæðinu. 
Picture
Nóg er af bílastæðum og eru þau sem næst eru merkt inn á myndina hér að neðan en þau dreifast á nokkur svæði í kringum túnið. Bannað verður að leggja fyrir framan Skátahúsið svæði F, við kirkjuna á svæði C og bannað er að leggja á túninu sjálfu. Við biðjum félagsmenn að gæta að því að leggja ekki í íbúastæði eða ólöglega. Yfirlit yfir bílastæði má sjá hér að neðan, hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.
Salerni er á svæðinu, nóg af ruslafötum en einnig er ruslagámur og flöskusöfnun fyrir skáta á svæðinu. Félagsmenn eru hvattir til að ganga vel um svæðið og gæta að því að hreinsa upp eftir hundana ásamt því að hirða eftir sig allt rusl. Mjög gott tjaldsvæði er á túninu ef fólk vill gista en skátafélagið Hraunbúar sjá um og reka tjaldsvæðið.  Svæðið er vaktað yfir nóttina en Hundaræktarfélag Íslands tekur enga ábyrgð á verðmætum sem kunna að vera skilin eftir. 

Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundaeigendur, ræktendur og sýnendur. Félagið verður einnig með rósettur af öllum stærðum og gerðum til sölu til að fagna góðum árangri.

​Hlökkum til að sjá ykkur!
(Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri)

Picture
Picture
Picture

Allir velkomnir!

5/6/2023

 
Picture
Innkallsþraut verður í gangi í úrslitahringnum frá kl 10-12 bæði laugardag og sunnudag. Allir geta tekið þátt, skráning fer fram í Royal Canin kúlunni sem staðsett verður við úrslitahringinn. 

Hlökkum til að sjá ykkur!

Nýr framkvæmdastjóri

2/6/2023

 
Picture
Hansína Guðmundsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Hundaræktarfélags Íslands og hóf störf þann 1. júní 2023. Hún er með BS próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og fjármál frá Háskólanum á Akureyri og að auki fór hún í jákvæða sálfræði á meistarastigi við Endurmenntun HÍ. Hansína hefur síðustu 11 ár starfað sem sérfræðingur á sviði fjármála, launa og mannauðsmála. HH ráðgjöf sá um ráðningarferlið.

​Stjórn HRFÍ býður Hansínu velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins.

    Eldri fréttir
    ​

    September 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    May 2023
    April 2023
    March 2023
    February 2023
    January 2023
    December 2022
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    July 2022
    June 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    December 2021
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    August 2021
    July 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    July 2019
    June 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    July 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    July 2017
    June 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    August 2014
    July 2014
    June 2014
    May 2014
    April 2014
    March 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013
    September 2013
    August 2013

Hundaræktarfélag Íslands
Melabraut 17, 220 Hafnarfjörður
S: 588-5255 - Email: hrfi@hrfi.is
Reikningsnúmer félagsins er: 515-26-707729 Kt. 680481-0249
Photo used under Creative Commons from jinkemoole