Í ljósi aðstæðna ákvað stjórn því að veita ræktendum áframhaldandi svigrúm er varðar augnvottorð. Telur stjórn ekki hægt að krefjast augnskoðunar að viðlagðri kæru til siðanefndar á þeim tíma sem ekki er hægt að bjóða uppá augnskoðun. Séu undaneldisdýr notuð til ræktunar án þess að þau hafi verið augnskoðuð eða með of gamalt augnvottorð verða ættbækur engu að síður gefnar út og ekki verður send inn kæra til siðanefndar.
Það er fortakslaust skilyrði að ræktandi mæti strax með dýrið í næstu augnskoðun sem félagið mun standa fyrir og eigi bókaðan tíma þegar sótt er um ættbækur. Mæti dýrið ekki verður án tafar málið sent til meðferðar siðanefndar auk þess sem afkvæmin verða sjálfkrafa sett í ræktunarbann. Svigrúmið gildir um þau got þar sem pörun átti sér stað eftir síðustu augnskoðun félagsins sem haldin var 6.-7. febrúar síðast liðinn.
Stjórn vill áfram árétta að ræktun án heilbrigðisskoðana er alfarið á ábyrgð ræktenda sjálfra og treystir þvi að ræktendur sýni áfram sem hingað til ábyrgð í ræktun og hafi í heiðri velferð og heilbrigði dýranna.