
Litli Sámur - desember |
Hér fyrir neðan má sjá Litla Sám fyrir desember mánuð. ![]()
![]() Stjórn HRFÍ ákvað á dögunum að útnefna nýjan heiðursfélaga í Hundaræktarfélagi Íslands en Lilja Dóra Halldórsdóttir var heiðruð með gullmerki þann 24. nóvember 2017. Skilyrði fyrir veitingu gullmerkis félagsins er að viðkomandi hafi lagt sérlega mikið af mörkum í þágu málefna félagsins. Lilja Dóra hefur starfað í og fyrir félagið í hjartnær 30 ár og hefur hún lagt mikið af mörkum á nánast öllum sviðum félagsins. Undanfarin ár hefur Lilja Dóra verið sýnilegust hinum almenna félagsmanni sem sýningastjóri á sýningum félagsins en hún er lykilmanneskja í því starfi. Lilja situr í einangrunarteymi félagsins, sýningarstjórn, ræktunar- og staðlanefnd, og sýningadómaranefnd. Þá hefur hún komið að skrifum á regluverki Hundaræktarfélagsins, veitt stjórnum almenna lögfræðiráðgjöf sem og aðstoðað við bréfaskriftir. Hún er ötul baráttumanneskja fyrir réttindum hundeigenda og hefur oft verið talsmaður Hundaræktarfélags Íslands. Lilja Dóra er sjálf sýningadómari og hefur réttindi til að dæma 6 hundakyn hún lærði einnig hundaþjálfun og var kennari við Hundaskóla Hundaræktarfélags Íslands og Hundaskólann á Bala í mörg ár. Hún hefur réttindi sem sporaleitardómari og kennari sem og réttindi til að dæma hlýðni, stig I og II. Stjórn Hundaræktarfélagsins þakkar Lilju Dóru einstakt framlag í þágu félagsins í gegnum árin og er óhætt að segja að hún sé vel að heiðrinum komin. Ákveðið hefur verið að loka skrifstofunni frá og með mánudeginum 18. desember og opna aftur þriðjudaginn 2. janúar. Minnum á að hægt er að senda gögn á hrfi@hrfi.is og teljast þau móttekin þann dag sem þau eru send inn.
Dagsetningar fyrir augnskoðanir hafa verið ákveðnar. Skoðað verður fjórum sinnum í Reykjavík, þar af tvisvar í tengslum við sýningar félagsins í Víðidalnum, og einu sinni á Akureyri.
Skráning í augnskoðun hefst í janúar 2018. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar. Augnskoðun 2.-3. mars Reykjavík – Víðidal, tengslum við marssýningu HRFÍ Dýralæknir: Jens Kai Knudsen og Susanne Mølgaard Kaarsholm Augnskoðun 24.-26. maí 24. maí á Akureyri, 25.-26. maí á skrifstofu HRFÍ, Reykjavík Dýralæknir: Jens Kai Knudsen Augnskoðun 13.-15. september Skrifstofu HRFÍ, Reykjavík Dýralæknir: Jens Kai Knudsen Augnskoðun 24.-25. nóvember Reykjavík - Víðidal, í tengslum við nóvembersýningu HRFÍ Dýralæknir: Susanne Mølgaard Kaarsholm |
|