
Á námskeiðinu er farið bæði í skriflegar æfingar sem og verklegan hluta. Námskeiðið er aðeins ætlað fyrir þá sem hafa hug á að vinna á næstu sýningum HRFÍ og hugsað bæði fyrir þá sem ekki hafa unnið áður og þá sem hafa unnið þar sem við munum á þessu námskeiði kenna á danska sýningakerfið.
Ekki er tekið þátttökugjald á námskeiðin en vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst hjá skrifstofu HRFÍ á póstfangið hrfi@hrfi.is eða í síma 588-5255.