
Leitað er að kraftmiklum og drífandi aðila í starf framkvæmdastjóra félagsins. Í boði er tækifæri til að starfa að fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum í lifandi og skemmtilegu umhverfi.
Helstu verkefni:
- Rekstur á skrifstofu félagsins, utanumhald um fjármál þess og mannaforráð
- Samskipti við erlenda og innlenda samstarfsaðila
- Yfirumsjón með framkvæmd viðburða, s.s. hundasýningar, námskeið, fyrirlestrar o.fl.
- Að auki sinnir framkvæmdastjóri öðrum tilfallandi verkefnum í samráði við stjórn félagsins
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Frumkvæði og drifkraftur
- Góð samskiptahæfni
- Reynsla af stjórnun viðburða er kostur
- Rekstrar og/eða stjórnunarreynsla
- Víðtæk og góð tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
- Einlægur áhugi á hundum væri mikill kostur
Hundaræktarfélag Íslands er félag allra hundaeigenda á Íslandi. Félagið er aðili að alþjóðasambandi hundaræktarfélaga (f. Fédération Cynologieque Internationale – FCI) og Norrænum samtökum hundaræktarfélaga (NKU). HRFÍ rekur skrifstofu sem er opin alla virka daga en skrifstofan er þjónustuaðili fyrir félagsmenn og hundaeigendur á Íslandi.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2023 og skulu umóknir berast í gegnum umsóknarvefinn Alfreð (www.alfred.is).