Tillögur um lagabreytingar
Á næsta aðalfundi félagsins koma til umfjöllunar fimm tillögur um lagabreytingar. Stjórn leggur til fjórar tillögur en ein kemur frá stjórn Vorstehdeildar.
Stjórn Vorstehdeildar leggur til bann við því að aðili sitji samtímis í stjórn Hrfí og stjórn deilda.
Stjórn leggur í fyrsta lagi til breytingu á fresti til skila á ársreikningum félagsins til endurskoðenda. Þá leggur stjórn til breytingar á VII. kafla laganna sem fjallar um ræktunardeildir félagsins.Í þriðja lagi leggur stjórn til stofnun úrskurðarnefndar hjá félaginu vegna viðskipta með hunda sem hafa verið ættbókarfærðir hjá félaginu. Í fjórða lagi er lagt til að skipaður verði umboðsmaður félagsmanna sem hefur það hlutverk að gæta þess að ekki sé gengið á rétt félagsmanna samkvæmt lögum og grundvallarreglum félagsmanna. Stjórn naut aðstoðar og leiðsagnar laganefndar við samningu tillagna þessara.
Tillögurnar sem bornar verða upp á næsta aðalfundi en samkvæmt 29. gr. laga félagsins verða þær að lögum hljóti þær a.m.k. 2/3 hluta greiddra atkvæða fundarmanna. Hér má finna tillögurnar til nánari skoðunar.
Ársreikningar og skýrsla stjórnar
Hér má finna endurskoðaða reikninga félagsins sem og skýrslu stjórnar fyrir starfsárið sem er að líða, sem nú liggja frammi á skrifstofu félagsins og verða lagðir fram á aðalfundi félagsins til staðfestingar.
![]()
| ![]()
|

Skýrsla stjórnar 2016 |