Á laugardeginum er Reykjavík Winner og NKU Norðurlandasýning en alþjóðleg sýning fer fram á sunnudeginum. Allir dómhringir byrja kl. 9:00 báða daga og áætlað að úrslit hefjist kl. 14:00 og standi til u.þ.b. kl. 17:00.
Dómarar helgarinnar verða: Ann Carlström (Svíþjóð), Birgitta Svarstad (Svíþjóð), Carsten Birk (Danmörk), Gunnar Nymann (Danmörk), Jadranka Mijatovic (Króatía), Paul Scanlon (Írland), Péter Harsányi (Ungverjaland), Roxana Liliana Birk (Danmörk), Tanya Ahlman-Stockmari (Finnland) og Terje Lindström (Noregur).
Keppni ungra sýnenda fer fram á laugardeginum og dómari verður Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir. Að þessu sinni eru 18 ungmenni skráð. Keppni hefst kl. 12:30 á yngri flokki og verður í úrslitahringnum.
Hér er hægt að sjá dagskrá og PM (dagskrá hringja)
Hér má finna umsagnir, niðurstöður og sýningaskrár sýninganna
Uppsetning sýningar fer fram á föstudeginum 7. júní. Ekki verður heimilt að tjalda á túninu fyrr en uppsetningu er lokið og leyfi hefur verið veitt, það er áætlað kl. 18 en gæti orðið seinna. Vinsamlegast athugið að tjöld við sýningarhringi mega ekki vera stærri en 3m x 3m og þau verða að vera staðsett minnst 2 metrum frá sýningahringjum. Stærri tjöldum má tjalda fjarri sýningarhringjum. Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér ruslafötur á svæðinu.
Vinsamlegast skoðið myndina hér að neðan hvar má tjalda, en fyrirkomulagið er breytt frá því í fyrra.
Skipulag svæðisins og hringja má sjá hér að neðan, hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri
Yfirlit yfir bílastæði má sjá hér að neðan, hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.
Salerni er á svæðinu, grill sem hægt er nýta og nóg af ruslafötum en einnig er ruslagámur og flöskusöfnun fyrir skáta á svæðinu. Félagsmenn eru hvattir til að ganga vel um svæðið og gæta að því að hreinsa upp eftir hundana ásamt því að hirða eftir sig allt rusl. Mjög gott tjaldsvæði er á túninu ef fólk vill gista en skátafélagið Hraunbúar sjá um og reka tjaldsvæðið. Svæðið er vaktað yfir nóttina en Hundaræktarfélag Íslands tekur enga ábyrgð á verðmætum sem kunna að vera skilin eftir.
Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundaeigendur, ræktendur og sýnendur. Íþróttadeild mun sjá um sjoppuna og einnig verða sölu- og kynningabásar á staðnum með ýmis tilboð og hvetjum við ykkur til að kíkja á sölubása. Félagið verður einnig með rósettur af öllum stærðum og gerðum til sölu til að fagna góðum árangri.
Vinsamlega athugið að lausaganga hunda á svæðinu er stranglega bönnuð og skulu allir hundar vera í taumi og á eru þeir alfarið á ábyrgð eigenda sinna. Við hvetjum félagsmenn til að virða reglur og samþykktir varðandi hundahald.