
Þá stýrir ritstjóri öflugri ritnefnd sem vinnur að útgáfu blaðsins.
Verkefni ritstjóra eru ma.:
Ritstjórn blaðsins
Efnisöflun og skrif í samvinnu við ritnefnd
Samskipti við hönnuði, ljósmyndara og prentsmiðju
Markaðs- og kynningarmál
Æskilegt er að ritstjóri uppfylli eftirfarandi hæfnisskilyrði:
• Þekking og áhugi á málefnum Hundaræktarfélagsins
• Reynsla af fjölmiðla- og útgáfustörfum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Gott vald á íslenskri tungu
• Kunnátta í að minnsta kosti einu norðurlandamáli er kostur
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
• Hæfileiki til að vinna með öðrum
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um. Allar nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri HRFI á netfanginu gudny@hrfi.is. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsóknir á gudny@hrfi.is eða hrfi@hrfi.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl, 2018