Eitt af fyrstu verkum nýrrar stjórnar á stjórnarfundi sem haldinn verður þann 19. júní nk. verður að skipa í fastanefndir félagsins. Allir félagsmenn geta boðið sig fram til starfa og eru eindregið hvattir til að gefa kost á sér þar sem þeir vilja hafa áhrif og vinna að framgangi mála í starfi félagsins.
Skipað verður í skólanefnd, ritnefnd Sáms, sýningarnefnd, vísindanefnd og laganefnd.
Áhugsamir eru hvattir til að senda tölvupóst á netfangið stjorn@hrfi.is fyrir mánudaginn 19. júní.